Um Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu. Áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. SAk er annað tveggja sérgreina-sjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum.
Sjúkrahúsið er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem leggur metnað í kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum.
Sjúkrahúsið á Akureyri leggur áherslu á samvinnu við heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni, tekur þátt í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á landsvísu og er miðstöð læknisfræðilegrar þjónustu sjúkraflugs í landinu.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1BqM546UOkb6JQktz1rCMM/72c11d1154e7352a839624cbf506b00f/_6302KY4_-_Copy.jpeg?w=50)
![Loftmynd af SAk](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1BqM546UOkb6JQktz1rCMM/72c11d1154e7352a839624cbf506b00f/_6302KY4_-_Copy.jpeg)