Þjónustukönnun
Sjúkrahúsið á Akureyri tekur þátt í þjónustukönnun ríkisstofnana.
Spurt er um hvernig viðkomandi líkaði þjónustan, hvernig viðmót starfsfólks var, um áreiðanleika þeirra upplýsinga sem fólk fékk í heimsókninni og fleira.
Niðurstöður könnunarinnar eru nýttar til að rýna í þjónustu SAk með það að markmiði að fylgjast með þróun og bregðast við ef gera þarf breytingar.
Hér til hliðar er hægt að velja hvaða þjónustu er verið að meta.
Athugið að þau sem fá sms um boðaðan tíma á SAk fá einnig boð um þátttöku með sms að heimsókn lokinni.
Við hvetjum ykkur til að taka þátt í þjónustukönnuninni, enda á hún að nýtast okkur til að bæta þjónustuna.
Bráðamóttaka
Svara þjónustukönnun vegna þjónustu Bráðamóttöku
Meginverkefni deildarinnar er móttaka bráðveikra og slasaðra. Einnig endurkomur/eftirlit sjúklinga vegna áverka eða veikinda.
Á deildinni er einnig starfrækt:
Miðstöð áfallahjálpar
Neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis
Skurðlækningadeild
Dag- og göngudeild skurðlækninga
Þjónustukönnun vegna þjónustu dag- og göngudeildar skurðlækninga
Lyflækningadeild
Dagdeild lyflækninga
Svara þjónustukönnun vegna þjónustu dagdeildar lyflækninga
Á deildinni er veitt meðferð fyrir sjúklinga með blóðsjúkdóma og krabbamein. Þar fara einnig fram sérhæfðar lyfjagjafir með líftæknilyfjum, mótefnum og öðrum lyfjum. Að auki eru einnig framkvæmdar ýmsar rannsóknir og fræðsla fer fram.
Göngudeild lyflækninga
Svara þjónustukönnun göngudeildar lyflækninga
Á göngudeild lyflækninga fer fram sérhæfð þjónusta við einstaklinga með fjölbreytt heilsufarsvandamál. Starfsmenn deildarinnar hafa sérhæfða þekkingu á ýmsum sviðum og taka móti einstaklingum í skipulögðu eftirliti og meðferðarviðtölum.
Starfsemi
· Vegna langvinnra sjúkdóma
· Rannsóknir og meðferðir
· Ráðgjöf og kennsla
Á göngudeild lyflækninga eru sérhæfðar móttökur fyrir hjarta-, lungna-, innkirtla-, meltingar-, gigtar-, nýrna- og minnissjúkdóma og næringarteymi.
Endurhæfingardeild
Rannsóknardeild
Dag- og göngudeild geðdeildar
Svara þjónustukönnun vegna þjónustu dag- og göngudeildar geðdeildar