Þjónusta
Heimahlynning er sérhæfð hjúkrunar- og læknisþjónusta ætluð einstaklingum sem þurfa sérhæfða einkennameðferð vegna krabbameins eða annarra langvinna og lífsógnandi sjúkdóma.
Heimahlynning sinnir vitjunum í heimahúsum á Akureyri og nágrenni en er að mestu veitt með skipulögðum vitjunum á dagvinnutíma.
Þjónustan er veitt sem stuðningur eða ráðgjöf við skjólstæðinga sem búa fjarri starfsstöð í gegnum síma eða snjalltæki í samvinnu við heilbrigðisstofnun viðkomandi bæjarfélag.
Vaktsími er opinn allan sólarhringinn 860 4666.
Einnig má hafa samband með tölvupósti.
Líknarmiðstöð er starfandi við Sjúkrahúsið á Akureyri samkvæmt aðgerðaráætlun Heilbrigðisráðuneytisins um líknarþjónustu 2021-2025.
Hlutverk líknarmiðstöðvar SAk:
Veita stuðning og ráðgjöf til fagstétta innan og utan sjúkrahússins.
Miðla þekkingu til fagstétta.
Vinna að þróun almennrar líknarmeðferðar í samstarfi við heilsugæslu, heimahjúkrun og hjúkrunarheimili.
Vera stuðningur við sérhæfða líknarþjónustu í landinu.
Tryggja gæði þjónustu með klínískum leiðbeiningum, stöðluðu verklagi og árangursmælingum.
Líknarmiðstöð hefur aðsetur á almennu göngudeildinni á 1. hæð (inngangur D).
Hægt er að hafa samband í gegnum netfangið liknarmistod@sak.is.
Simanúmer
Aðalnúmer Sjúkrahússins á Akureyri 4630100
Símatími heilbrigðisgagnafræðings er milli 10-12 og er síminn 4630872
Opnunartími
Alla virka daga frá kl 8:00-16:00
Staðsetning
D álma, 1 hæð