Símatími heilbrigðisgagnafræðings er milli 10-12 og er síminn 4630872
Opnunartími
Alla virka daga frá kl 8:00-16:00
Staðsetning
D álma, 1 hæð
Þjónusta og almennar upplýsingar
Á deildinni eru gerðar maga- og ristilspeglanir ásamt öðrum viðvikum. Bris og gallvegaþræðingar eru gerðar af meltingateyminu á myndgreiningu eða á skurðstofu.
Heilbrigðisgagnafræðingur kallar þig inn í speglun og sendir þér upplýsingar um undirbúning fyrir speglun og spurningarlista. Vinsamlega afbókaðu tímalega tíma í síma 4630872 (heilbrigðisgagnafræðingur milli kl 10-12) eða í síma 4630341 (speglun)ef þú getur ekki mætteða ert með flensulík einkenni, hita, beinverki, mikinn hósta eða uppgang.
Gengið er inn á deildina í gegnum D-inngang. Komið er við í afgreiðslunni inn til vinstri áður en farið er upp á 1 hæðinni þar sem biðrými speglunar er. Hjúkrunarfræðingur kemur fram í biðrýmið þegar komið er að spegluninni og sækir þig þar.
Mismunandi er eftir speglunum hversu langan tíma þau taka, en yfirleitt tekur magaspeglun innan við 30 mín. og ristilspeglun um 1 klst. Hvildarherbergi er á speglun ef þörf er á hvíld eða eftirfylgd eftir speglun.