Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Göngudeild lyflækninga

Á göngudeild lyflækninga fer fram sérhæfð þjónusta við einstaklinga með fjölbreytt heilsufarsvandamál. Starfsmenn deildarinnar hafa sérhæfða þekkingu á ýmsum sviðum og taka móti einstaklingum í skipulögðu eftirliti og meðferðarviðtölum.

Starfsemi

· Vegna langvinnra sjúkdóma

· Rannsóknir og meðferðir

· Ráðgjöf og kennsla

Á göngudeild lyflækninga eru sérhæfðar móttökur fyrir hjarta-, lungna-, innkirtla-, meltingar-, gigtar-, nýrna- og minnissjúkdóma og næringarteymi.

Í hverri móttöku er lögð áhersla á einstaklingsmiðaða og faglega þjónustu. Á deildinni er veitt markviss ráðgjöf, fræðsla og stuðningur með það að markmiði að bæta heilsu, fyrirbyggja vandamál og styðja einstaklinga í að takast á við veikindi. Móttökurnar eru ýmist ætlaðar einstaklingum með langvinn heilsufarsvandamál sem eru í eftirliti eftir meðferð eða greiningu og/eða sjúkrahúslegu sem þurfa sérhæfða fræðslu og ráðgjöf um meðferð, lyfjagjöf, lífstílsbreytingar og önnur úrræði.

Með teymisvinnu og samvinnu fagaðila og samþættingu þekkingar er einstaklingum veitt heildræn þjónusta án þess að þörf sé á innlögn. Markmiðið er ætíð að veita samfellu í meðferð og styðja einstaklinga til að takast á við sín veikindi og bæta lífsgæði.