Dagdeild lyflækninga
Símanúmer
Aðalnúmer Sjúkrahússins á Akureyri: 463 0100
Beint símanúmer deildar: 463 0180
Opnunartími
Alla virka daga frá kl. 8:00–16:00
Staðsetning
D-álma, 1. hæð
Þjónusta og almennar upplýsingar
Á deildinni er veitt meðferð fyrir sjúklinga með blóðsjúkdóma og krabbamein á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum.
Á fimmtudögum og föstudögum fara fram sérhæfðar lyfjagjafir með líftæknilyfjum, mótefnum og öðrum lyfjum. Þá eru einnig framkvæmdar ýmsar rannsóknir og fræðsla fer fram.
Áður en þú kemur á deildina í viðtal og/eða meðferð er gott að hafa eftirfarandi í huga:
Vinsamlega afbókaðu tíma í síma 463 0180 ef þú ert með flensulík einkenni, hita, beinverki, mikinn hósta eða uppgang. Þú færð frekari upplýsingar símleiðis.
Gott getur verið að taka með sér afþreyingu og nesti fyrir lengri meðferðir.
Fyrir þá sem koma í viðtal og/eða meðferð á vegum blóð- og krabbameinslækna þarf að fara í blóðprufu, nema annað sé tekið fram, til að tryggja að niðurstöður liggi fyrir við komu. Fyrir viðtöl eða meðferð á mánudegi þarf að fara í blóðprufu á föstudegi.
Gengið er inn á deildina í gegnum D-inngang. Komið er við í afgreiðslunni inn til vinstri áður en farið er upp á 1 hæðinni þar sem biðrými dagdeildarinnar er
Í afgreiðslunni færð þú armband með strikamerki sem er notað við skráningu lífsmarka og lyfjagjafa.
Viðtal hjá lækni tekur yfirleitt um 20 mínútur. Fyrsta viðtal er lengra. Gott er að hafa aðstandanda með. Láttu deildina vita tímanlega ef þú getur ekki mætt
Til eru margar tegundir krabbameinslyfja sem vinna á mismunandi hátt. Því getur reynst nauðsynlegt að gefa fleiri en eitt lyf í senn, en það fer eftir eðli sjúkdómsins hvernig samsetning lyfjameðferðar er. Algengast er að gefa lyfin í æð, en einnig sem töflur, inngjöf í vöðva, undir húð eða í vökvarýmið umhverfis mænu. Í sumum tilvikum er fleiri en ein leið notuð.
Það er einstaklingsbundið hversu oft og hve lengi lyfin eru gefin. Einnig er mismunandi hversu langur tími líður á milli lyfjagjafa. Hver lyfjagjöf getur staðið í nokkrar mínútur, klukkustundir eða nokkra daga í einu. Algengt er að gefa lyfin með 3-4 vikna millibili.
Þú færð nánari upplýsingar um meðferðina þína, aukaverkanir og möguleg úrræði hjá þínum lækni og hjúkrunarfræðingi.
Hafðu strax samband ef vart verður eftirtalinna einkenna:
Hiti hækkar
Viðvarandi ógleði eða uppköst
Óvenjumikill slappleiki og þreyta
Hósti og uppgangur
Særindi í munni og hálsi eða við þvaglát
Marblettir, húðblæðingar, nefblæðingar eða blóð í þvagi/hægðum
Niðurgangur
Mikinn bjúg á höndum og fótum eða annars staðar á líkamanum
Skyndilegir verkir
Hringdu í síma 4630180 og í síma 4630802 utan dagvinnutíma (Bráðamóttakan)
Regluleg skimun á líðan og einkennum er framkvæmd á deildinni. Þú ert beðin(n) um að fylla út matsblað þar sem þú metur vanlíðan þína á kvarðanum 0-10 og merkir við mögulegar ástæður fyrir vanlíðan. Með reglulegri skimun er hægt að greina vanlíðan, styrk hennar og mögulegar orsakir svo að hægt sé að veita þér viðeigandi aðstoð.
Á deildinni eru 22 meðferðarrými, bæði stólar og rúm.
Hægt er að fá kodda og teppi til að hafa það sem þægilegast.
Í hádeginu á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum er boðið upp á léttar veitingar í hádeginu. Annars er alltaf í boði kaffi, te og vatn í vatnsvél
Vinsamlega virðið næði annarra sjúklinga.
Þú mátt taka með lesefni, handavinnu eða tölvu
Gestanet spítalans er í boði
Farsíma má nota, en stilltu hann á hljóðlaust og taktu tillit til samferðafólks þegar þú talar í síma.