Ríkisborgararéttur fyrir börn og ungmenni
Fylgdarlaus börn og ungmenni án ríkisfangs eða með vernd
Fylgdarlaust barn eða ungmenni, sem er ríkisfangslaust eða hefur hlotið alþjóðlega vernd og hefur haft fasta og samfellda búsetu á Íslandi í að minnsta kosti þrjú ár, getur átt rétt á íslenskum ríkisborgararétti og öðlast hann með því að tilkynna það til Útlendingastofnunar fyrir 21 árs aldur.
Forsjáraðili þarf að leggja fram tilkynninguna ef um er að ræða barn yngra en 18 ára.
Skilyrði
Til að þú getir fengið íslenskt ríkisfang með tilkynningu verður þú að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Þú ert ríkisfangslaus eða fékkst veitta alþjóðlega vernd á Íslandi sem fylgdarlaust barn.
Þú ert yngri en 21 árs.
Þú hefur haft lögheimili á Íslandi í að minnsta kosti þrjú ár.
Þú hefur dvalist á Íslandi samfellt í að minnsta kosti þrjú ár.
Kostnaður
Afgreiðslugjald er 13.500 krónur.
Tilkynning er ekki tekin til vinnslu fyrr en greiðsla hefur borist, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.
Umsókn
Tilkynningar er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.
Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða senda í bréfpósti á sama heimilisfang.
Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ísland
Fylgigögn
Sjá nánari leiðbeiningar varðandi kröfur til skjala. Ekki þarf vottun á íslensk vottorð.
Tilkynning: Í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda.
Greiðslukvittun.
Vegabréf: Afrit af síðum með persónuupplýsingum, rithandarsýnishorni og öllum stimplum.
Fæðingarvottorð: Staðfest afrit af frumriti. Frumritið þarf að vera lögformlega staðfest með apostille vottun eða keðjustimplun, og síðan tekið af því staðfest afrit.
Þýðing fæðingarvottorðs: Ef vottorðið er ekki á ensku eða Norðurlandamáli þarftu að leggja fram staðfest afrit eða frumrit þýðingar, sem gerð er af löggiltum skjalaþýðanda.
Búsetutímavottorð frá Þjóðskrá: Vottorðið tilgreinir í hvaða landi eða löndum þú hefur átt lögheimili frá upphafi lögheimilisskráningar á Íslandi til dagsins í dag.
Lög
Íslenskur ríkisborgararéttur er veittur barni eða ungmenni sem er ríkisfangslaust eða hefur hlotið alþjóðlega vernd samkvæmt 2. málsgrein 3. greinar laga um íslenskan ríkisborgararétt númer 100/1952.
Ríkisborgararéttur fyrir flóttamenn
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun