Fara beint í efnið

Ríkisborgararéttur fyrir börn og ungmenni

Ungmenni, 18 til 20 ára, sem hefur haft fasta og samfellda búsetu hér á landi frá 13 ára aldri, getur öðlast íslenskan ríkisborgararétt með því að tilkynna Útlendingastofnun þá ósk sína.

Sjá leiðbeiningar um ríkisborgararétt fyrir ungmenni 18-20 ára.

Barn eða ungmenni, sem er ríkisfangslaust eða hefur hlotið alþjóðlega vernd og hefur haft fasta og samfellda búsetu hér á landi í að minnsta kosti þrjú ár, getur öðlast íslenskan ríkisborgararétt með því að tilkynna Útlendingastofnun þá ósk sína fyrir 21 árs aldur.

Sjá leiðbeiningar um ríkisborgararétt fyrir börn og ungmenni án ríkisfangs eða með alþjóðlega vernd.

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun