Leysar, leysibendar og IPL-tæki
Á þessari síðu
Notkun öflugra leysa, leysibenda og IPL-tækja meðal almennings er leyfisskyld en innflutningur tækjanna tilkynningarskyldur.
Sjá einnig til þeirra sem íhuga að fara í meðhöndlun með öflugum leysi eða IPL tæki.
Almennt
Leysibendar eru ekki leikföng. Leysibendar geta verið öflugir og valdið bráðum skaða á augum.
Leysar, leysibendar og IPL-tæki eru meðal annars notuð:
í iðnaðarvinnslu á efnum,
við rannsóknir og í mælitækjum,
í læknis- og snyrtimeðferðum,
við ljósasýningar á tónleikum.
Ef um öfluga leysibenda er að ræða þarf sérstakt leyfi til notkunar.
Áhrif á heilsu
Leysar, leysibendar og IPL-tæki geta verið skaðlegir augum og húð, því ber að nota þá varlega. Einnig geta öflugustu leysarnir og leysibendarnir valdið íkveikju.
Á öllum leysum á að vera merking með upplýsingum um hvaða flokki þeir tilheyra.
Leysar, leysibendar og IPL-tæki geta valdið brunaskaða á húð og augu og í einhverjum tilfellum leitt til sjónmissis.
Hættan á skaða fer eftir:
afli leysis,
bylgjulengd,
fjarlægð frá auga eða húð,
hversu lengi augað verður fyrir geislanum,
hversu dreifður geislinn er.
Ef geislinn er ekki samfelldur heldur púlsaður er hættan einnig háð lengd og orku púlsanna.
Varnir
Til að komast hjá augnskaða af völdum öflugs leysis er mikilvægt að horfa aldrei í leysigeislann. Í sumum tilfellum þarf að nota hlíðfarbúnað.
Þjónustuaðili
Geislavarnir ríkisins