Tilkynning um innflutning öflugs leysis, öflugs leysibendis eða IPL-tækis
Innflutningur öflugra leysa, öflugra leysibenda og IPL-tækja er tilkynningarskyldur. Aðili sem flytur inn slík tæki skal tilkynna innflutninginn til Geislavarna ríkisins áður en hann á sér stað.
Öflugir leysar og leysibendar skulu vera í samræmi við ÍST EN 60825-1:2014 (sbr. reglugerð nr. 171/2021). Á hverju tæki sem reglugerðin tekur til skal vera CE-merking sem og merkingar um flokkun og hættu við notkun.
Geislavörnum ríkisins er heimilt að leita upplýsinga hjá öðrum opinberum yfirvöldum, svo sem tollstjóra, um innflutning á öflugum leysum, öflugum leysibendum og IPL-tækjum.
Notkun öflugra leysibenda, öflugra leysa og IPL-tækja er ýmist leyfisskyld eða tilkynningaskyld. Fylla þarf út sérstakt eyðublað í tengslum við notkunina:
Tilkynning um notkun öflugs leysis, öflugs leysibendis eða IPL-tækis í læknisfræði eða fegrunarskyni
Tilkynning um innflutning öflugs leysis, öflugs leysibendis eða IPL tækis
Um eiganda eða söluaðila tækis, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 171/2021 um innflutning og notkun leysa, leysibenda og IPL-tækja.
Um innflutningsaðila, ef annar en eigandi
Um leysinn eða IPL-tækið
Leysir með afl sem svarar til flokka 3R, 3B, og 4 (e. Laser Class) samkvæmt staðli ÍST-EN-60825-1 telst öflugur. Notkun öflugra leysa og IPL tækja er ýmist leyfisskyld eða tilkynningaskyld, sbr. reglugerð 171/2021.
Ef þörf er á að hengja fleiri en eina skrá við þá þarf að draga þær allar saman yfir í viðhengið.
Valfrjálst viðhengi
Þjónustuaðili
Geislavarnir ríkisins