Almennt þarf að greiða innflutningsgjöld af þeim vörum eru fluttar til Íslands í farangri eða með pósti.
Þó má ferðast með hóflegt magn af verslunarvöru, gjöfum, áfengi, matvöru, níktótíni og tóbaki, án þess að greiða innflutningsgjöld, ef uppfyllt eru skilyrði fyrir tollfrelsi.
Algengar vörur
Lágmarksaldur til að flytja inn áfengi er 20 ár.
Í farangri
Heimild: 6 einingar af áfengi.
Styrkleiki | Magn |
|---|---|
Sterkt áfengi yfir 21% | 1 eining er 0,25 lítri |
Létt áfengi undir 21% | 1 eining er 0,75 lítri |
Bjór eða gosvín undir 6% | 1 eining er 3,0 lítrar |
Greiða þarf toll af vörum umfram þessi hámörk. Einstaklingar með rafræn skilríki á Íslandi geta gengið frá greiðslu á tollskyldum varningi í farangri fyrir komuna til landsins á vefnum rautthlid.is.
Sjá: Lög um gjald á áfengi og tóbak, nr. 96/1995 með síðari breytingum.
Innflutningur með póst- eða vörusendingu
Við innflutning ber að greiða áfengisgjald og 11% virðisaukaskatt á áfengi.
Hægt er að áætla heildarverð fyrir vöru í reiknivél innflutningsgjalda.
Í farangri eða í póst eða vörusendingum
Ekki má flytja inn fæðubótaefni sem innihalda óleyfileg efni eða eru háð leyfi.
Á vef Matvælastofnunar má finna lista yfir algengustu innihaldsefni sem eru óleyfileg.
Sömu reglur gilda hvort sem vörurnar eru pantaðar á erlendum vefverslunum, sendar frá einstaklingum erlendis eða hafðar með í farangri. Innflytjandi/viðtakandi þarf því að óska eftir því við póstþjónustuaðila að vara verði endursend eða henni fargað. Vörur sem háðar eru leyfi Matvælastofnunar eru einnig stöðvaðar.
Hafir þú pantað fæðubótaefni en sendingin hefur verið stöðvuð þá eru leiðbeiningar um næstu skref á vef Matvælastofnunar.
Allur innflutningur á fæðubótaefnum til sölu eða dreifingar er háður starfsleyfi.
Í farangri eða póst- eða vörusendingu
Gjafir sem einstaklingar búsettir erlendis hafa með sér eða senda hingað til lands af sérstöku tilefni eru undanþegnar innflutningsgjöldum að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
Að verðmæti gjafar sé ekki meira en 13.500 kr. Ef reikningur fylgir ekki þarf að meta verðmæti í samvinnu við tollyfirvöld.
Gjöfin sé send af sérstöku tilefni til dæmis vegna afmælis, brúðkaups, jóla eða fermingar.
Gjöfin sé send frá tengdum einstaklingi búsettum erlendis.
Undanþága innflutningsgjalda gildir ekki um áfengi og tóbak.
Ef margar gjafir eru pakkaðar saman
Ef ljóst er að gjafirnar eru ætlaðar fleiri en einum aðila er hver gjöf metin fyrir sig.
Ef reikningur fylgir ekki
Fylgi reikningur ekki vörusendingu áætlar Tollstjóri verðmætið með hliðsjón af líklegu smásöluverði á innkaupsstað. Sé verðmæti gjafar meira en 13.500 kr. eru innflutningsgjöld reiknuð að því marki sem verðmætið er umfram þá fjárhæð.
Brúðkaupsgjafir
Brúðkaupsgjafir mega vera dýrari en 13.500 krónur, svo lengi sem tollyfirvöld telja gjöfina eðlilega og hæfilega. Brúðkaupsgjafir þurfa að berast innan 6 mánaða frá brúðkaupi.
Í farangri
Heimilt er að hafa meðferðis lyf til eigin nota í magni sem miðast við mest 100 daga notkun viðkomandi, enda sé ljóst hvert það magn sé.
Tollverðir óskað eftir að ferðamaður framvísi gögnum, til dæmis læknisvottirði, til að færa sönnur á að honum sé nauðsyn á töku viðkomandi lyfja í því magni sem tilgreint er.
Undantekning:
Karlkynshormónalyf af flokki anabólískra stera, peptíð hormón og hliðstæð efni má þó einungis hafa meðferðis í magni sem miðast við 30 daga notkun að hámarki.
Innflutningur með póst- eða vörusendingu
Óheimilt er að flytja inn lyf til eigin nota í pósti frá ríkjum utan EES.
Sjá einnig: Reglur um innflutning einstaklinga á lyfjum til eigin nota á vef Lyfjastofnunar og lög nr. 84/2018 um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum
Í farangri
Við komu til Íslands þarf ekki að greiða innflutningsgjöld af matvöru upp að:
25.000 krónur hámarksverðmæti
10 kíló að þyngd
Greiða þarf innflutningsgjöld af vörum umfram þessi hámörk. Hægt er að ganga frá greiðslu á tollskyldum varningi í farangri fyrir komuna til landsins á vefnum rautthlid.is.
Innflutningur með póst- eða vörusendingu
Almennt er heimilt að flytja matvörur frá Evrópskra efnahagssvæðinu að uppfylltum skilyrðum Matvælastofnunar.
Ekki er leyfilegt að flytja inn:
matvöru frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins, sjá nánar á vef Matvælastofnunar
ósoðnar kjötvörur
Lágmarksaldur til að flytja inn nikótínvörur er 18 ár.
Nikótínvörur eru:
Nikótínpúðar
Rafrettur
Vökvi til áfyllingar í rafréttur, hvort sem hann innheldur nikótín eða ekki
Reglurnar gilda ekki um nikótínvörur sem eru skilgreindar sem lyf eða matvæli.
Í farangri
Við komu til Íslands þarf ekki að greiða toll af níkótínvörum upp að:
20 dósir af nikótínvörum.
eða 20 einnota rafrettur með 2 ml tönkum.
eða 40 ml af vökva til áfyllingar fyrir rafrettur.
Greiða þarf aðflutningsgjöld af vörum umfram þessi hámörk. Hægt er að ganga frá greiðslu á tollskyldum varningi í farangri fyrir komuna til landsins á vefnum rautthlid.is.
Innflutningur með póst- eða vörusendingu
Einstaklingar yfir 18 ára mega panta níkótínvörur til eigin nota.
Greiða þarf innflutningsgjöld af nikótínvörum sem fluttar eru inn með pósti.
Lágmarksaldur til að flytja inn tóbak er 18 ár.
Einstaklingar mega ekki flytja inn munntóbak og fínkorna neftóbak.
Í farangri
Við komu til Íslands þarf ekki að greiða innflutningsgjöld af tóbaksvörum upp að:
200 vindlingum (eitt karton)
eða 250 grömmum af öðru tóbaki
Greiða þarf innflutningsgjöld af vörum umfram þessi hámörk. Hægt er að ganga frá greiðslu á tollskyldum varningi í farangri fyrir komuna til landsins á vefnum rautthlid.is.
Innflutningur með póst- eða vörusendingu
Ekki má panta tóbak til Íslands.
Leyfilegt er að fá sendar tóbaksvörur frá öðrum einstaklingi ef það er í litlu magni og til einkaneyslu.
Í farangri
Ferðamenn búsettir á Íslandi
Við komu til Íslands mega ferðamenn búsettir á Íslandi, hafa með sér vörur sem verslaðar voru í ferðinni, upp að eftirfarandi hámarksupphæð:
fullorðnir: 88.000 krónur samtals
börn yngri en 12 ára: 44.000 krónur samtals.
Miðað er við smásöluverð á innkaupsstað.
Greiða þarf innflutningsgjöld af vörum umfram þessi hámörk. Hægt er að ganga frá greiðslu á tollskyldum varningi í farangri fyrir komuna til landsins á vefnum rautthlid.is.
Tollskoðun
Við tollskoðun þarf að sýna varning og sönnun fyrir kaupum.
Varningur þarf að vera til persónulegra nota, hann má ekki vera ætlaður til sölu eða í atvinnuskyni. Sjá nánar um skilyrði fyrir tollfrelsi.
Ferðamenn búsettir erlendis
Ferðamenn búsettir erlendis mega koma með:
brúðkaupsgjafir
aðrar gjafir að verðmæti 13.500 krónur.
Greiða þarf innflutningsgjöld að verðmæti umfram þá upphæð.
Brúðkaupsgjafir mega vera dýrari en 13.500 krónur, svo lengi sem tollyfirvöld telja gjöfina eðlilega og hæfilega. Brúðkaupsgjafir þurfa að berast innan 6 mánaða frá brúðkaupi.
Innflutningur með póst- eða vörusendingu
Greiða þarf innflutningsgjöld af vörum sem verslaðar eru erlendis frá og sendar til Íslands í pósti.
Hægt er að áætla heildarverð fyrir vöru í reiknivél innflutningsgjalda.
Aðrar vörur með takmörkunum
Ekki er leyfilegt að flytja inn ávana- og fíkniefni, þar með talið kannabis í lækningaskyni.
Vörur sem innihalda CBD falla undir ýmis mismunandi lög og þá um leið mismunandi markaðseftirlitsstjórnvöld. Hvort slíkar vörur séu leyfilegar er þar af leiðandi einnig nokkuð mismunandi.
Innflutningur á:
CBD í matvælum og nikótínvörum er bannaður (sjá Matvælastofnun)
CBD í lyfjum er háður leyfi Lyfjastofnunar
CBD í snyrtivörum er leyfilegur (sjá Umhverfisstofnun)
Í farangri
Ferðamönnum er heimilt að hafa meðferðis:
vönd með afskornum blómum og greinum (allt að 25 plöntum)
blómlauka og rótar- og stöngulhnýði frá Evrópu í órofnum verslunarumbúðum (allt að 2 kílógrömm)
og einstakar pottaplöntur frá Evrópu (allt að 3 stykki)
Með póst- eða vörusendingu
Innflutningur blóma og annarra plantna er almennt háður því að:
þeim fylgi heilbrigðisvottorð frá opinberum aðila sem hefur eftirlit með plöntusjúkdómum í ræktunarlandinu
Matvælastofnun veiti leyfi
Lifandi dýr
Það er skilyrði fyrir innflutningi lifandi dýra að leyfi Matvælastofnunar liggi fyrir, auk þess sem fara þarf að fyrirmælum um einangrun.
Ef uppvíst verður um innflutning dýra í heimildarleysi ber að lóga þeim.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Stjórnarráðsins
Uppstoppuð dýr (dýraminjar)
Innflutningur á uppstoppuðum dýrum, dýrahlutum, jarðneskum leifum og ösku krefst leyfi Matvælastofnunar.
Framandi dýr og afurðir þeirra
Þeir sem hyggjast flytja inn tegundir eða afurðir tegunda sem tilgreindar eru í viðaukum reglugerðar um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu, nr. 993/2004 þurfa að sækja um CITES-leyfi hjá Umhverfisstofnun.
Til dæmis þarf leyfi fyrir innflutningi:
minjagripa úr fílabeini
hvalbeini
rostungstönnum
og ýmsum náttúrulyfjum sem innihalda afurðir CITES tegunda.
Sækja þarf um slík leyfi fyrir alla alþjóðlega verslun svo sem inn- og útflutning heildsala, einkaaðila og einnig fyrir flesta minjagripi úr afurðum þeirra tegunda sem ofangreind reglugerð tekur til.
Að sjálfsögðu er ekki ætlast til að ferðamenn hafi slík efni meðferðis. Um innflutning eiturefna og hættulegra efna, gilda efnalög númer 61/2013.
Ef grunur leikur á að innflutningur eigi sér stað á vöru sem brýtur gegn hugverkaréttindum er Skattinum heimilt að fresta tollafgreiðslu vörunnar á meðan rétthafi leitar bráðabirgðaaðgerða hjá þar til bærum yfirvöldum og í framhaldi af þeim hefur málarekstur fyrir dómstólum.
Ákvæðið á ekki við um vörur í litlu magni í farangri ferðamanna eða litlar vörusendingar, enda sé ekki um innflutning í viðskiptaskyni að ræða.
Sjá frekari upplýsingar um vöruskoðun Skattsins.
Þegar komið jarðneskar leifar eða ösku látins einstaklings þarf að framvísa dánarvottorði.
Ef óskað er eftir því að fá að dreifa öskunni hér á landi þá þarf að óska sérstaklega eftir því hjá Sýslumanninum á Norðurlandi Eystra. Sjá nánar um leyfi til dreifingar ösku utan kirkjugarðs.
Í farangri eða með póst- og vörusendingum
Fjarskiptatæki og búnaður
Fjarskiptatæki og búnaður verður að vera CE-merktur til að staðfesta að hann uppfylli lágmarkskröfur.
Sendibúnað fyrir þráðlaus fjarskipti má aðeins hafa undir höndum, setja upp eða nota að fengnu leyfi Fjarskiptastofu.
Fjarskiptabúnaður sem ekki ber CE-merkið er ólöglegur hér á landi.
Sjá nánar um innflutning fjarskiptatækja og búnaða hjá Fjarskiptastofu.
Í farangri eða með póst- eða vörusendingu
Reiðtygi
Ekki er heimilt að flytja notaða hnakka, beisli, tauma, múla eða píska úr leðri inn til landsins þar sem leður er ekki hægt að sótthreinsa með fullnægjandi hætti.
Nánar um innflutning reiðtygja á vef Matvælastofnunar.
Reiðfatnaður
Það er heimilt að hafa meðferðis reiðfatnað, sem notaður hefur verið erlendis, enda hafi sótthreinsun farið fram áður en varningurinn er fluttur inn.
Liggi ekki fyrir vottorð erlends yfirvalds um sótthreinsun, fer hún fram hérlendis á kostnað viðkomandi.
Nánar um innflutning reiðfatnaðs á vef Matvælastofnunar.
Móttaka á óhreinum reiðfatnaði í Leifsstöð
Hestamönnum sem ekki eru í aðstöðu til að þrífa og sótthreinsa notaðan reiðfatnað áður en komið er til landsins býðst að afhenda reiðfatnað til hreinsunar í rauða hliðinu í Leifsstöð.
Óhreinum reiðfatnaði skal framvísa í „rauða hliðinu" í tollinum í lokuðum plastpokum.
(Með reiðfatnaði er átt við reiðbuxur hverskonar, reiðjakka, -úlpur, -skó, -stígvél og -hjálma en þessa þjónustu má einnig nýta fyrir annan fatnað og skófatnað sem notaður hefur verið í umhverfi hesta erlendis . Ekki er þó tekið við leður- og vaxjökkum.)Viðkomandi hestamenn skulu gera vart við sig í „rauða hliðinu" í flugstöðinni og framvísa fatnaðinum þar til tollvarða. Tollverðir sjá til þess að fatnaðurinn, ásamt upplýsingum um eiganda, fari í sérstaka kassa sem þeir hafa í sinni vörslu þar til þeir eru sóttir af fatahreinsuninni. Að lokinni hreinsun verður fatnaðurinn sendur í póstkröfu til eiganda.
Komi farþegar með óhreinan reiðfatnað í græna hliðið við tollgæslu á Keflavíkurflugvelli eða verði vísir að því að vera með óhreinan reiðfatnað við tollskoðun í græna hliðinu, verður litið á slíkt sem smygl. Varningurinn er þá gerður upptækur og viðkomandi kærður. Sama á við um sendingar sem innihalda óhreinan reiðfatnað og koma til landsins með pósti, skipa- eða flugfrakt.
Ráðstöfun þessi gildir ekki um notuð reiðtygi, reiðhanska eða annan búnað sem notaður hefur verið í hestamennsku enda er innflutningur á slíkum varningi óheimill.
Í farangri eða með póst- eða vörusendingu
Innflytjendum, útflytjendum og eftir atvikum tollmiðlurum, ferðamönnum og farmönnum er skylt að gera sérstaklega grein fyrir fjármunum, í reiðufé eða handhafabréfum, þar með talið ferðatékkum, sem:
fluttir eru til landsins frá útlöndum
fluttir eru frá landinu til útlanda
eru að fjárhæð sem nemur 10.000 evrum eða meira, miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni.
Tollgæslunni er heimilt að leggja hald á fjármuni ef grunur leikur á að þeir verði notaðir við brot gegn refsiákvæðum almennra hegningarlaga, samanber 162. grein tollalaga númer 88/2005. Eru slík mál afhent lögreglunni til meðferðar.
Sambærilegar reglur gilda í öllum helstu viðskiptalöndum Íslands.
Svona gerir þú grein fyrir fjármunum sem eru meðferðis
Þú gerir grein fyrir fjármunum með því að fylla út eyðublaðið E-29, prenta og afhenda tollgæslunni á brottfarar- eða komustað. Eyðublaðið er einnig hægt að nálgast hjá tollgæslunni.
Í farangri eða með póst- eða vörusendingu
Handhafi evrópsks skotvopnaleyfis getur flutt þau vopn sem tilgreind eru í leyfinu og hæfilegt magn skotfæra til landsins, ef
notkun vopnsins og skotfæranna er leyfð á Íslandi
að dvölin er ekki lengri en þrír mánuðir.
Heimilt er að krefja skotíþróttamenn um staðfestingu á boði frá skotfélagi og veiðimenn um staðfestingu frá landeiganda eða úthlutun á hreindýraveiðileyfi.
Þeir sem hafa hug á að flytja skotvopn eða skotfæri til landsins snúi sér til lögreglu í sínu umdæmi og afli nauðsynlegra leyfa áður en innflutningur fer fram.
Innflutningur vopna, skotfæra og sprengiefna er að öðru leiti bannaður nema með leyfi lögreglustjóra. Sjá nánar um innflutning skotvopna.
Sjá nánar lög nr. 16/1998 - Vopnalög.
Í farangri eða með póst- eða vörusendingu
Heimilt er að flytja inn notaðan veiðibúnað, svo sem:
stangir
veiðihjól
öngla/spóna/flugur
vöðlur
háfa
Ekki er leyfilegt að nýta hann til veiða í ferskvatni nema að undangenginni sótthreinsun, enda liggi ekki fyrir fullnægjandi vottorð.
Sótthreinsun veiðibúnaðar
Heimilt er að flytja inn notaðan veiðibúnað, s.s. stangir, veiðihjól, öngla/spóna/flugur, vöðlur og háfa, en ekki leyfilegt að nýta hann til veiða í ferskvatni nema að undangenginni sótthreinsun, enda liggi ekki fyrir fullnægjandi vottorð.
Sjá nánar á vef Matvælastofnunar.
Í farangri eða með póst- eða vörusendingu
Óheimilt er að flytja inn ýmis vopn.
Hnífar: Óheimilt að flytja inn hnífa með lengra blaði en 12 cm, fjaðrahnífa og kasthnífa og önnur slík vopn.
Höggvopn: til dæmis hnúajárn og ýmiss konar kylfur, lásboga og handjárn.
Eftirlíkingar: óheimilt er að flytja inn eftirlíkingar af vopnum.
Nánar um leyfi til að flytja inn vopn.
Þjónustuaðili
Skatturinn