Greiða toll af sendingum til Íslands
Þegar þú pantar vörur erlendis frá þarft þú að greiða innflutningsgjöld áður en þú færð sendingu eða pakka afhentan.
Stundum þarf að greiða flutningsaðila og tollmiðlara fyrir sína þjónustu.
Hvar er pakkinn minn?
Þegar þú pantar á netinu færð þú sent númer í tölvupósti til að rekja sendinguna, á ensku tracking number. Þetta númer getur þú notað til að fylgjast með hvar pakkinn þinn er. Pakkar og sendingar eru aldrei sendar til Skattsins.
Hafðu samband við flutningsaðila til að fá upplýsingar um hvar pakkinn þinn er staddur.
Svona er ferlið
Pakkinn er sendur af stað
Sendandi skráir sendinguna gefur henni númer til að rekja sendinguna. Þetta númer er notað til að fylgja með staðsetningu pakkans.Pakkinn berst til Íslands
Flutningsaðili sér um að tollskýrslu með upplýsingum um vöruna sé skilað. Tollyfirvöld reikna út innflutningsgjöld, eins og tolla, vörugjöld og virðisaukaskatt, á grundvelli tollflokkunar vörunnar.Borga innflutningsgjöld
Ef innflutningsgjöld voru ekki innifalin í verðinu við kaup þarf að greiða þau áður en þú færð pakkann.Þú færð pakkann
Flutningsaðili afhendir þér pakkann eða þú sækir hann.
Þú berð ábyrgð á að allar upplýsingar í tollskýrslu séu réttar. Ógreinilegar eða rangar upplýsingar leiða til tafa.
Tollfrjálsar sendingar
Ef upplýsingar vantar
Flutningsaðili eða tollmiðlari sér um að safna og skila gögnum. Hann hefur samband við þig ef upplýsinga vantar.
Skjöl sem gæti þurft að leggja fram
Tollskýrsla
Vörureikningur
Farmbréf eða flutningsskjal
Flutningsgjaldsreikningur
Leyfi eða vottorð, ef við á
EUR.1 á flutningsskírteini, ef við á
Þjónustuaðili
Skatturinn