Fara beint í efnið

Greiða toll af sendingum til Íslands

Skil á vörum frá útlöndum

Ef skila á vöru sem pöntuð var á netinu getur verið mögulegt að fá endurgreiðslu, lækkun eða niðurfellingu innflutningsgjalda.

Tilfelli þar sem hægt er að sækja um endurgreiðslu innflutningsgjalda:

  • Vara ekki sótt.
    Ef vara er endursend vegna þess að viðtakandi hefur ekki fundist eða viðtakandi hefur neitað að taka við vörunni.

  • Vara endursend ónotuð.
    Ef vara hefur verið sótt og síðan endursend ónotuð til sendingaaðila.

  • Vara reynist gölluð.
    Ef vara reynist gölluð og er í kjölfarið endursend ónotuð til seljanda. Einnig ef galli kemur ekki í ljós fyrr en við notkun. Ef ný vara er send í staðinn fyrir aðra sem var í ábyrgð, þá getur þurft að greiða gjöldin aftur af nýju vörunni.

Þegar endursend vara er sótt getur þú þurft að sýna kvittun fyrir sendingarkostnaði eða sendinganúmer þess sem sent var úr landi. Einnig getur þú þurft að sýna fram á ástæðu endursendingarinnar, til dæmis með rafrænum samskiptum milli þín og seljandans varðandi málið.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn