Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Hvað má ferðast með eða panta til Íslands

Tollafgreiðsla

Ferðamenn sem koma til landsins frá útlöndum eiga að eigin frumkvæði að skýra tollgæslunni frá og framvísa:

  • tollskyldum varningi sem þeir hafa meðferðis

  • þeim varningi sem háður er innflutningsskilyrðum eða innflutningsbanni.

Ferðamenn þurfa hins vegar ekki að gera grein fyrir öðrum varningi sem þeir hafa meðferðis nema þess sé sérstaklega óskað.

Tollhlið

Velja skal tollhlið út frá því hvort tollskyldur varningur er meðferðis eða ekki.

Rautt tollhlið

Rauð tollhlið eru fyrir þá sem hafa meðferðis:

  • tollskyldan varning

  • varning sem háður er innflutningsskilyrðum eða innflutningsbanni

Grænt tollhlið

Græn tollhlið eru fyrir þá sem eingöngu hafa meðferðis:

  • tollfrjálsan farangur

  • engan varning sem er háður innflutningstakmörkunum

Ef ferðamaður er í vafa um hvaða tollfríðindum hann á rétt á eða hvort tiltekinn hlutur sem hann hefur meðferðis sé háður sérstökum innflutningstakmörkunum er ráðlegt að hann velji rautt tollhlið.

Skoðun að frumkvæði tollvarðar

Tollvörður getur ávallt óskað eftir að skoða farangur ferðamanns, jafnvel á grænu tollhliði; það gildir og um farangur ferðamanna á afgreiðslustöðum þar sem ekki eru notuð rauð og græn tollhlið.

Ferðamanni ber að veita nauðsynlega aðstoð vegna tollskoðunar, til dæmis að opna töskur og umbúðir ef nauðsynlegt reynist og gefa upplýsingar um farangurinn sem um er beðið.

Komi við tollskoðun fram varningur sem ekki er greint frá eins og fyrir er mælt hér að framan, skoðast hann ólöglega innfluttur. Er heimilt að gera slíkan varning upptækan til ríkissjóðs auk þess sem viðkomandi kann að þurfa að sæta refsingu lögum samkvæmt.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn