Hvað má ferðast með eða panta til Íslands
Tímabundinn innflutningur
Hægt er að sækja um heimild til tímabundins innflutnings án þess að þurfa að greiða innflutningsgjöld ef um eftirtaldar vörur er að ræða:
Vörur sem eru undanþegnar vörugjaldi
Vörur til sýningar
svo sem sýningarbásar og skreytingar fyrir viðskipta- eða iðnsýningar.Tæki og búnaður fyrir ráðstefnur
svo sem tölvur og tækjabúnaður, öryggisbúnaður fyrir þátttakendur, prentað efni, dúkar og borðbúnaður með merki fyrirtækja, vörur að óverulegu verðmæti sem viðurkenningar til þátttakenda.Keppnisbúnaður íþróttamanna
svo sem ökutæki og varahluti, íþróttabúningar og aðrir tengdir búnaður.Búnaður listamanna,
svo sem hljóðfæri, leikmunir og aðrir búnaður fyrir hljómleika eða listsýningar.Tæki vísindamanna
svo sem búnaður sem er fluttur inn til rannsókna.Búnaður kvikmyndagerðar- og fjölmiðlamanna
svo sem tæki sem eru notuð við kvikmyndagerð eða efnisöflun.Björgunartæki
svo sem búnaður fyrir aðila sem koma til björgunarstarfa.Atvinnutæki verktaka
svo sem únaður sem er fluttur inn til að vinna ákveðið verk, samkvæmt auglýsingu númer 25/1970 um tollasamning.Vélar og tæki til reynslu
svo sem vörur sem fluttar eru inn til reynslu um stuttan tíma.Vörur til viðgerðar
svo sem vörur sem fluttar eru inn til viðgerðar eða annarrar aðvinnslu, til að forða þeim frá skemmdum.Vörur samkvæmt A.T.A. ábyrgðarskjali
svo sem vörur sem falla undir tollasamning Íslands varðandi hlunnindi vegna innflutnings á vörum til kynningar og sýningar, samkvæmt auglýsingu númer 24/1970 og 25/1970.
Hvernig er sótt um?
Sótt er um heimild til tímabundins innflutnings til Tollstjóra. Umsóknin er rituð á aðflutningsskýrslu, eyðublað E1, með viðeigandi undanþágutilvísun í reit 14 á skýrslunni.
Leggja þarf fram fullnægjandi tryggingu fyrir greiðslu aðflutningsgjalda með beiðni um heimild til tímabundins innflutnings nema þú njótir greiðslufrests á aðflutningsgjöldum.
Eftirfarandi tryggingar teljast fullnægjandi:
A.T.A. ábyrgðarskjal
Fjártrygging eða skilyrðislaus ábyrgð viðskiptabanka, sparisjóðs eða vátryggingafélags.
Hægt er að óska eftir því að Tollstjóri falli frá kröfu um framlagningu tryggingar.
Hægt er að óska eftir því að Tollstjóri framlengi heimild til tímabundins innflutnings en þó aldrei í lengri tíma en til tólf mánaða nema sérstakar ástæður mæli með því.
Þegar kemur að því að flytja vöruna út á ný er mikilvægt að fá staðfestingu Tollstjóra um endurútflutninginn. Sé endurútflutningur vöru ekki staðfestur af Tollstjóra verða aðflutningsgjöld lögð á vöruna.
Þjónustuaðili
Skatturinn