Flugnám, Einkaflugmaður (PPL)
Réttindi einkaflugmanna
Réttindi handhafa einkaflugmannsskírteinis eru að stjórna þeim tegundum loftfara sem hann hefur öðlast réttindi á án þess að taka greiðslu fyrir.
Til að mega flytja farþega þurfa flugmenn að hafa gilt heilbrigðisvottorð og hafa framkvæmt á síðustu 90 dögum, á viðkomandi loftfar:
þrjú flugtök
þrjár lendingar
Einkaflugmanni óheimilt með öllu að
auglýsa flug
gefa til kynna á einhvern hátt að hann bjóði uppá farþega-, útsýnis- eða verkflug gegn gjaldi.
Öll slík starfsemi er leyfisskyld.
Í einkaflugi er þó heimilt að skipta kostnaði við flugið enda fellur einn hluti kostnaðar á flugmanninn sjálfan. Slíka kostnaðarskiptingu þarf að vera hægt að sýna fram á við Samgöngustofu
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3EumKpWqbPFygVWxWteoW/2961b0d9c162e8528e5771ab1707a368/Samgongustofa-stakt-400-400.png)
Þjónustuaðili
Samgöngustofa