Dvalarleyfi fyrir foreldri barna yngri en 18 ára
Réttindi og skyldur
Dvalarleyfi fyrir foreldri barna yngri en 18 ára er að jafnaði veitt til eins árs í senn en að hámarki í tvö ár.
Ef leyfið er veitt á grundvelli fjölskyldusameiningar við handhafa tímabundins dvalarleyfis getur það þó aldrei gilt lengur en dvalarleyfi þess einstaklings.
Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.
Réttur til endurnýjunar leyfis
Dvalarleyfið má endurnýja að hámarki í tvö ár, séu skilyrði leyfis enn uppfyllt, en þó getur leyfið aldrei gilt lengur en leyfi þess sem umsækjandi leiðir rétt sinn af.
Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.
Réttur til fjölskyldusameiningar
Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.
Réttur til að vinna
Handhafar dvalarleyfis fyrir foreldri barna yngri en 18 ára þurfa að sækja sérstaklega um atvinnuleyfi til að mega stunda vinnu hér á landi, sjá leiðbeiningar í lista yfir fylgigögn.
Þeir mega ekki byrja að vinna fyrr en dvalar- og atvinnuleyfi hefur verið veitt.
Þeir mega ekki vinna fyrir annan atvinnurekanda en þann sem atvinnuleyfið var veitt til.
Réttur til ótímabundins dvalarleyfis
Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun