Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Brunabótamat

Endurmat á brunabótamati

Vegna fjölda umsókna um endurmat í kjölfar útgáfu Vegvísis að brunabótamati 2025 hefur afgreiðslutími umsókna um endurmat lengst og er nú um 6-8 vikur.
Beiðnir um forgang, t.d. vegna sölu- eða lánamála, má senda á brunabotamat@hms.is og við gerum hvað við getum til að greiða fyrir því ferli.

Athugið: Ef brunabótamatið er verulega vanmetið gæti verið ástæða til að kanna með viðbótarbrunatryggingu hjá tryggingafélaginu þínu þar til brunabótamatið hefur verið uppfært.

Það er mikilvægt að brunabótamat endurspegli efnislegt virði eignarinnar. Ef einhverju hefur verið bætt við eignina eða framkvæmdar meiri háttar endurbætur er það ástæða til að óska eftir endurmati.

Brunabótamat

Brunabótamat nær yfir efnisleg verðmæti eignar (til dæmis timbur, steypu, stál) og kostnað við byggingu, að frádregnum afskriftum vegna aldurs, slits og ástands. Brunabótamat húseigna afskrifast aldrei að fullu en á fyrstu 60 árum eignar afskrifast brunabótamatið að einhverju leyti. Gert er ráð fyrir að húsið hafi fengið eðlilegt viðhald. Auk þess er innifalinn kostnaður við að fjarlægja brunarústir.

Ef farið er í miklar endurbætur og hlutar eignar endurnýjaðir getur verið ástæða til að endurskoða afskriftarár eignarinnar. Við það ganga afskriftir til baka að einhverju leyti. Þá eru þeir byggingarhlutir ekki taldir lengur frá þeim tíma sem húsið var byggt (til dæmis 1963) heldur frá þeim tíma sem þeir voru endurnýjaðir (til dæmis 2022).

Dæmi um viðbætur við brunabótamat

  • Stækkun á húsi.

  • Skjólveggir úr timbri.

  • Sólpallur.

  • Yfirbygging á svölum.

  • Heitur pottur.

Dæmi um endurbætur

  • Skipt um lagnir.

  • Nýjar innréttingar.

  • Skipt um einangrun eða klæðningu.

  • Allt sem er meira en eðlilegt viðhald.

Síðast endurmetið

Í fasteignaleit HMS má meðal annars finna upplýsingar um hvenær brunabótamat húseignar var síðast endurmetið af sérfræðingi.

Senda beiðni um endurmat brunabótamats

Beiðni um endurmat brunabótamats

Þú sendir umsókn með upplýsingum um fasteignanúmer og landeignanúmer.

Fylgigögn

  • Greinargóð lýsing á endurbótum eða viðbyggingu, efni sem var notað og hvaða ár framkvæmdirnar voru gerðar.

  • Lýsing á öllu sem er nýrra en byggingarár, eða það ár sem er vitað að brunabótamat hafi verið endurmetið.

  • Skýrar myndir af öllu því sem þú vilt gera grein fyrir.

  • Skriflegt umboð ef annar en eigandi sækir um.

Þegar þú hefur sent umsóknina er birt staðfesting á móttöku. Ef upplýsingar vantar er haft samband með tölvupósti en ef þú vilt bæta við upplýsingum (til dæmis fleiri myndum) getur þú sent á netfangið brunabotamat@hms.is.

Kostnaður

Gjald vegna endurmats brunabótamats fylgir gjaldskrá HMS.

Afgreiðsla á beiðni

Þú færð tilkynningu um nýtt brunabótamat með hnippi á island.is. Afgreiðslutími er að jafnaði 5–10 virkir dagar.

Þegar brunabótamat hefur verið endurmetið skilar það sér sjálfkrafa til tryggingafélagsins þíns og uppfærast iðgjöld á brunatryggingu í samræmi við það.