Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu fjallar um erindi vegna ættleiðinga á landsvísu. Erindum vegna ættleiðinga skal beina til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, Hlíðasmára 1, Kópavogi.
Ef þú hefur fyrirspurn varðandi efnið eða þarfnast frekari aðstoðar, er hægt að hafa samband við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu með því að hringja eða senda tölvupóst á netfangið fjolskylda@syslumenn.is
Rafræn afhending gagna
Sýslumenn geta sent skjöl vegna mála í pósthólf aðila hjá Ísland.is. Til að fá tilkynningu um að skjal hafi borist, þarf að stilla pósthólfið þannig.
Kostnaður
Ekki er tekið gjald fyrir að leggja fram beiðni um alþjóðlega fjölskylduættleiðingu hjá sýslumanni.
Umsækjendur greiða kostnað af þýðingu gagna ef við á. Einnig kann að falla til annar kostnaður, til dæmis vegna staðfestingar á skjali í útgáfulandi þess, svo sem apostille vottun.
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu