Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Áfengis- og vímuvarnir - ráðleggingar embættis landlæknis

Árangursríkar áfengisforvarnir

Embætti landlæknis leggur áherslu á gagnreyndar forvarnaraðferðir og er meðal annars stuðst við Alþjóðlega staðla um vímuefnaforvarnir (UNODC og World Health Organization). Þar eru skilvirkar forvarnir skilgreindar sem samþætt inngrip og stefnur sem byggja á gagnreyndum heimildum, eiga sér stað víðs vegar um samfélagið og taka mið af aldri og áhættuflokkum. Þar kemur enn fremur fram að það sé flókið samspil þátta sem útsetur börn, unglinga og fullorðna fyrir vímuefnanotkun og annarri áhættuhegðun. Ekki er hægt að bregðast við slíku með því að innleiða aðeins eina forvarnaraðgerð, sem oft er einangruð og takmörkuð hvað varðar tímaramma og aðgengi. Alhliða markmið forvarnaaðgerða er að styðja við heilbrigðan og öruggan þroska einstaklinga. Skilvirkt forvarnakerfi samanstendur af blöndu umhverfisþátta og þroskandi þátta, ásamt fræðslu sem þó er minni að umfangi.

Samþætt inngrip

Til að hægt sé að skila samþættum inngripum og framfylgja stefnum þarf sterkt og öflugt kerfi. Eftirfarandi er nauðsyn:

  • Styðjandi stefna og lagarammar

  • Gagnreyndar heimildir og rannsóknir

  • Samhæfing á öllum stigum (á landsvísu, milli landshluta og innan sveitarfélaga)

  • Þjálfun stjórnvalda og sérfræðinga

  • Skuldbinding um að veita nægilegt fjármagn og viðhalda kerfinu til lengri tíma

SAFER-verkefnið

Árið 2018 hóf Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, í samstarfi við samstarfsaðila, forvarnarátaksverkefnið SAFER. Markmiðið er að draga úr áfengisdrykkju og tengdum skaða. Verkefninu er skipt niður í fyrsta, annars og þriðja stigs forvarnir.

  • Fyrsta stigs forvarnir. Áhersla er á að takmarka aðgengi að áfengi, til dæmis með aðgengi, verðlagningu og auglýsingabanni

  • Annað stigs forvarnir. Með skimun og stuttum íhlutunum

  • Þriðja stigs forvarnir. Með því að bæta meðferð við áfengisvandamálum

Verkefnið er sett upp sem fimm gagnreyndar aðgerðir sem allar draga úr áfengistengdum skaða. Hver aðgerðarflokkur er felldur undir einn bókstaf í orðinu SAFER.

Áfengi: Engin venjuleg vara

Til þess að auka þekkingu á hvers vegna þessar lykilaðgerðir eru nauðsynlegar hefur embætti landlæknis gefið út á íslensku samantekt á bókinni Áfengi: Engin venjuleg vara (Alcohol: No Ordinary Commodity - a summary of the third edition (Babor et al., 2022) en á henni byggir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin vinnu sína. Í bókinni er farið yfir ótalmargar rannsóknir að baki áðurnefndum aðgerðum.

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis