Fara beint í efnið

Útlendingastofnun: Dvalarleyfi - Almenn skilyrði

Hvaða gögnum þarf ég að skila þegar ég endurnýja dvalarleyfi fyrir flóttafólk?

Almennt þarf ekki að skila fylgigögnum með umsókn um endurnýjun dvalarleyfis vegna alþjóðlegrar verndar. Með umsókn um endurnýjun fyrir barn þarf þó að skila samþykki forsjáraðila, ef foreldrar hafa sameiginlega forsjá.

Ef ástæða er til getur Útlendingastofnun óskað eftir frekari gögnum við afgreiðslu umsóknarinnar, til dæmis í tengslum við dvöl þína erlendis eða sakaferil.

Stafræna umsókn og leiðbeiningar er að finna á síðunni Endurnýjun dvalarleyfis fyrir flóttafólk.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Útlendingastofnun

Þjónustuver

Afgreiðslan er opin 9 - 14 alla virka daga Þjónustuverið er opið mán - fim: 9 - 14 & fös 9 - 12

Dalvegur 18, 201 Kópavogi (sjá kort)

Netspjall

Sendu okkur línu

Sími +354 444 0900