Tryggingastofnun: Eldra kerfi örorku- og endurhæfingalífeyris fyrir 31. ágúst 2025
Á ég rétt á endurhæfingarlífeyri?
Endurhæfingu er ætlað að efla einstakling sem getur ekki sinnt störfum á vinnumarkaði vegna slyss eða sjúkdóms með það að markmiði að ná aftur starfshæfni eða auka atvinnuþátttöku. Skilyrði sem þarf að uppfylla til að sækja um endurhæfingu eru að vera í virkri endurhæfingu undir handleiðslu heilbrigðismenntaðs fagaðila, hafa átt lögheimili á Íslandi í samfellt síðustu 12 mánuði ásamt því að hafa fullnýtt veikindaréttindi frá vinnuveitanda og sjúkrasjóði stéttarfélags.