Aðstoð við sjálfviljuga heimför
Ferða- og enduraðlögunarstyrkir
Ferðastyrkur er reiðufé sem ætlað er til kaupa á nauðsynjum meðan á ferðalagi stendur.
Enduraðlögunarstyrkur á að stuðla að árangursríkri enduraðlögun útlendings í heima- eða viðtökuríki og styðja viðkomandi við að koma þar undir sig fótunum á nýjan leik. Styrkurinn er almennt greiddur út í því ríki og getur til dæmis nýst í húsaleigu, nám, atvinnu eða önnur verkefni í samstarfi við alþjóðastofnun eins og til dæmis IOM.
Kjósi útlendingur ekki að nýta styrkinn í sérstök enduraðlögunarverkefni getur hann, með samþykki viðeigandi alþjóðastofnunar, fengið hluta styrksins greiddan í reiðufé.
Ekki er þó heimilt að afhenda hærri fjárhæð í reiðufé en sem nemur helmingi af upphæðinni (sjá töflu).
Í undantekningartilvikum er þó heimilt að greiða enduraðlögunarstyrk að fullu í formi reiðufjár þegar sérstakar aðstæður eru til staðar í heima- eða viðtökuríki, til dæmis þegar þar ríkir óðaverðbólga eða samstarfsaðilar íslenskra stjórnvalda eru ekki með starfsemi í ríkinu.
Viðbótarstyrkur er greiddur ef sótt er um áður en frestur til sjálfviljugrar heimfarar er liðinn.
Upphæð styrkja
Fjárhæð enduraðlögunarstyrkja fer eftir því hvort heima- eða viðtökuríki sé skilgreint í flokki A, B eða C og tekur mið af því á hvaða stigi ósk um aðstoð til heimfarar er borin fram.
Flokkur A
Ríki í flokki A eru: Afganistan, Íran, Írak, Nígería, Sómalía, Palestína og Pakistan.
Fullorðnir | Börn | Fylgdarlaus börn | |
---|---|---|---|
Ferðastyrkur | 200€ | 100€ | 200€ |
Enduraðlögunarstyrkur | 2.000€ | 1.000€ | 2.000€ |
Viðbótarstyrkur, ef sótt um áður en niðurstaða liggur fyrir á kærustigi | 2.000€ | 1.000€ | 1.000€ |
Viðbótarstyrkur, ef sótt um eftir að niðurstaða liggur fyrir á kærustigi | 500€ | 500€ | 500€ |
Hámarksupphæð á hvern einstakling, allt að | 4.200€ | 2.100€ | 3.200€ |
Flokkur B
Í flokk B falla þau ríki sem ekki eru í flokki A eða C og ekki eru á lista yfir örugg upprunaríki.
Fullorðnir | Börn | Fylgdarlaus börn | |
---|---|---|---|
Ferðastyrkur | 200€ | 100€ | 200€ |
Enduraðlögunarstyrkur | 1.000€ | 500€ | 2.000€ |
Viðbótarstyrkur, ef sótt um áður en niðurstaða liggur fyrir á kærustigi | 1.500€ | 1.000€ | 1.000€ |
Viðbótarstyrkur, ef sótt um eftir að niðurstaða liggur fyrir á kærustigi | 500€ | 500€ | 500€ |
Hámarksupphæð á hvern einstakling, allt að | 2.700€ | 1.600€ | 3.200€ |
Ríki C
Í flokk C falla ríki sem eru undanþegin áritunarskyldu til Íslands. Ríkisborgarar þessara ríkja eiga ekki rétt á ferðastyrk eða viðbótarstyrk.
Umsækjendur um vernd frá þessum ríkjum, sem staddir voru á Íslandi við gildistöku reglugerðarinnar þann 12. júlí 2024, fá greidda styrki samkvæmt flokki B.
Ríki C | Fullorðnir | Börn | Fylgdarlaus börn |
---|---|---|---|
Enduraðlögunarstyrkur | 500€ | 500€ | 500€ |
Undanþágur
Þegar sérstaklega stendur á er heimilt að veita ferða- og/eða enduraðlögunarstyrk til útlendings sem vill snúa aftur til ríkis sem er á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki. Þetta á þó ekki við ef viðkomandi hefur hlotið alþjóðlega vernd í Schengen-ríki.
Slíkt kæmi einkum til skoðunar í tilviki barnafjölskyldna, þar sem allir fjölskyldumeðlimir óska eftir aðstoð við sjálfviljuga heimför. Það sama getur átt við um útlendinga sem taldir eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu, að mati viðeigandi stjórnvalds, eða ef viðeigandi stjórnvald telur umsækjanda af öðrum ástæðum hafa þörf fyrir sérstaka aðstoð í tengslum við flutning. Við mat á því hvort umsækjandi eigi rétt á aðstoð skal meðal annars höfð hliðsjón af heilsufari og félagslegri stöðu umsækjanda.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun