Aðstoð til greiðslu kostnaðar vegna gjaldþrotaskipta
Á þessari síðu
Umsóknarferlið
Þú fyllir út umsókn um aðstoð vegna fjárhagsvanda.
Til þess að sækja um þarft þú:
rafræn skilríki
símanúmer
tölvupóstfang
Fylltu út formið eins vel og þú getur. Þú þarft ekki að fylla út í alla reiti.
Þú þarft að staðfesta:
samskiptaupplýsingar, tölvupóstfang og símanúmer
að þú hafir kynnt þér upplýsingar um gagnaöflun
Fylgigögn
Þú þarft ekki að skila fylgigögnum með umsókn
Ráðgjafi kallar eftir nauðsynlegum upplýsingum í samráði við þig.
Eftir umsókn er send inn
Þú færð:
tölvupóst með staðfestingu og leyninúmeri. Leyninúmerið er notað í samskiptum við umboðsmann skuldara í síma og tölvupósti.
símtal frá ráðgjafa þegar komið er að vinnslu umsóknar þinnar og framhaldið ákveðið.
Ráðgjafi aflar ekki upplýsinga og hefur ekki samband við kröfuhafa eða aðra án samþykkis.
Tilbaka: Aðstoð til greiðslu kostnaðar vegna gjaldþrotaskipta
Áfram: Niðurstaða umsóknar
Þjónustuaðili
Umboðsmaður skuldara