Að semja um skuld við kröfuhafa
Lista upp allar skuldir
Listaðu upp allar skuldir og hverjum þú skuldar. Fólkið sem þú skuldar peninga eru kröfuhafar þínir.
Raðaðu skuldum eftir mikilvægi
Í forgangi ætti að vera að greiða af skuldum tengdum heimilinu eins og:
afborganir húsnæðislána
húsaleigu
fasteignagjöld (njóta lögveðsréttar í fasteign)
hússjóðsgjöld (njóta lögveðsréttar í fasteign)
brunatryggingariðgjöld (njóta lögveðsréttar í fasteign)
orkureikninga
Vakin skal athygli á að kröfuhafi sem á lögveðsrétt í fasteign getur farið fram á nauðungarsölu á henni vegna skuldar.
Öðrum skuldum má forgangsraða sem dæmi með því að greiða:
elstu kröfurnar
inn á kröfur sem bera hæstu vexti eða kostnað
kröfur sem búið er að leggja á dráttarvexti
kröfur sem eru komnar í löginnheimtu

Þjónustuaðili
Umboðsmaður skuldara