Fara beint í efnið

Að semja um skuld við kröfuhafa

Á þessari síðu

Almennt

Ef þú skuldar peninga og átt í erfiðleikum með að borga, getur þú reynt að semja við þá sem þú skuldar (kröfuhafa).

Þú getur fengið ókeypis ráðgjöf vegna fjárhagsvanda.

Undirbúningur

Það er gott að undirbúa sig vel fyrir samtal við kröfuhafa. Byrjaðu á að lista upp allt sem þú skuldar og vera búin að:

  1. finna út hve mikið þú getur greitt (greiðslugeta)

  2. skrifa niður atriði sem þú vilt ræða, eins og:

    • upphæðir

    • fjölda afborgana

    • vaxtakjör

    • tímasetningar

  3. setja raunhæf markmið til að auka líkur á að ná samkomulagi.

Hafa samband

Þú hefur samband við kröfuhafa með því að hringja, senda tölvupóst eða mæta á staðinn.

Útskýrðu aðstæður þínar og að þú:

  • eigir í erfiðleikum með að borga af skuld eða láni

  • viljir kanna möguleika á að endursemja eða gera nýja greiðsluáætlun

Þú þarf að vera tilbúin gefa upplýsingar um fjárhagslega stöðu þína.


Áfram: Samningsatriði