Að kaupa inn í fyrsta sinn
Þegar kaupa þarf vöru eða þjónustu fyrir opinbera aðila þarf að:
Byrja að kanna hvort vara eða þjónustan sé hluti af miðlægum samningum Fjársýslunnar. Miðlægir samningar eru annað hvort rammasamningar eða gagnvirk innkaupakerfi.
Ef vara er ekki hluti að miðlægum samningum Fjársýslunnar þarf að kanna hvort varan eða þjónustan sé undir viðmiðunarfjárhæðum.
Ef undir sjá Innkaup undir innlendum viðmiðunarfjárhæðum
Ef yfir sjá innkaupaferil Fjársýslunnar Að kaupa inn fyrir opinbera aðila.
1. Aðgangur að samningskerfi
Með aðgangi að samningskerfi Fjársýslunnar er hægt að skoða vöruflokka og kjör rammasamninga og gagnvirkra innkaupakerfa.
Nýskráning í samningakerfi Fjársýslunnar
Við nýskráningu berst beiðni til Fjársýslunnar um aðgang. Um sólarhring eftir að einstaklingur nýskráir sig berst viðkomandi tölvupóstur þar sem aðgangur er veittur inn í kerfið, eða ekki.
Starfsmenn A-hluta stofnana fá aðgang að kerfinu. A-hluta stofnanir eru reknar af stærstum hluta fyrir almannafé. Sjá A-hluta stofnanir.
Starfsmenn B-hluta stofnana sækja um aðild.
Þeir sem eru aðilar (kaupendur) að rammasamningakerfi Fjársýslunnar geta skoðað kjör hvers samnings með innskráningu. Athugið að seljendur/birgjar hafa ekki aðgang að læsta svæðinu.
Innskráning
Velja rammasamning.
Fara í flipann „Skoða kjör“.
Skrá sig inn.
Ef viðkomandi hefur ekki skráð sig inn áður eða skráð sig inn á eldri vef Ríkiskaupa, er valin „Nýskráning".
Þegar að kaupandi hefur slegið inn upplýsingar fær hann sjálfkrafa aðgang.
Ef einhver vandamál verða við innskráningu biðjum við ykkur um að hafa samband við Fjársýsluna.
Vara eða þjónusta er hluti af samningi
Ef vara eða þjónusta er hluti af miðlægum samningi Fjársýslunnar þarf að fylgja innkaupareglum hvers samnings. Hægt er að lesa almennar leiðbeiningar hér að neðan.
Sjá, Að kaupa inn samkvæmt rammasamningi
Sjá, Að kaupa inn samkvæmt gagnvirku innkaupakerfi
2. Vara eða þjónusta er ekki hluti af samningi eða samningstími liðinn.
Ef það sem á að kaupa er ekki hluti af rammasamningi eða samningsfrestur liðinn skiptir máli hver kostnaðurinn er. Ef fyrirhuguð kaup eru yfir ákveðinni fjárhæð, svokallaðri viðmiðunarfjáhæð, er farið í útboð og almennu innkaupaferli Fjársýslunnar fylgt.
Ef fyrirhuguð kaup eru undir viðmiðunarfjárhæð geta kaupin farið fram samkvæmt kaupum undir viðmiðunarfjárhæðum.
Það er alltaf velkomið að senda innkaupasérfræðingum Fjársýslunnar fyrirspurn.
Þjónustuaðili
Fjársýslan (Innkaup)