Útlit á númeraplötum
Almenn merki
Hefðbundin skráningarmerki og eru notuð á flest skráningarskyld ökutæki
Eru hvít með bláum stöfum og fást í stærðum A, B, C og D eftir gerð ökutækis
Áletrun merkjanna samanstendur af bókstöfum og tölustöfum

VSK merki
VSK merki eru notuð á bifreiðum sem skráðar eru í notkunarflokkinn VSK ökutæki
Eru hvít með rauðum stöfum og ramma og fást í stærðum A, B og D
Áletrun merkjanna samanstendur af bókstöfum og tölustöfum

Einkamerki
Einkamerki má skrá á bifreiðar og bifhjól. Ekki er heimilt að skrá einkamerki á ökutæki sem bera aðrar tegundir skráningarmerkja, svo sem VSK merki, utanvegamerki eða undanþágumerki.
Eru hvít með bláum stöfum og fást í stærðum A, B, C, og D
Áletrun merkjanna geta verið tveir til sex íslenskir bókstafir eða tölustafir
Ekki er heimilt að nota áletrun sem
Getur valdið ruglingi við önnur skráningarmerki
Brýtur í bága við íslenskt málfar
Er líkleg til að valda hneykslun

Sendiráðsmerki
Sendiráðsmerki eru notuð á ökutækjum sem skráð eru í notkunarflokkinn sendiráðsökutæki.
Eru græn með hvítum stöfum og fást í stærðum A, B, C og D
Áletrun merkjanna hefst á bókstöfunum CD og inniheldur auðkenni þess ríkis sem ökutækið tilheyrir

Undanþágumerki
Undanþágumerki eru notuð á ökutækjum sem skráð eru í notkunarflokkinn undanþáguökutæki
Eru hvít með grænum stöfum og fást í stærðum A, B og D
Áletrun merkjanna fylgja sömu reglum og gilda um almenn skráningarmerki

Utanvegamerki
Utanvegamerki eru notuð á ökutækjum sem skráð eru í notkunarflokkana beltabifreið, náumökutæki og flugvallarökutæki. Þau eru einnig notuð á dráttarvélum sem eru aðallega notaðar utan opinberra vega.
Eru hvít með grænum stöfum og fást í stærðum A, B og D
Áletrun merkjanna fylgja sömu reglum og gilda um almenn skráningarmerki

Torfærumerki
Torfærumerki eru notuð á ökutækjum í ökutækjaflokknum torfærutæki
Eru rauð með hvítum stöfum og fást eingöngu í stærð C
Áletrun merkjanna fylgja sömu reglum og gilda um almenn skráningarmerki

Reynslumerki
Bílaumboðum er heimilt að nota reynslumerki á óskráð ökutæki vegna flutnings, reynsluaksturs eða kynningarstarfsemi.
Eru rauð með svörtum stöfum og fást í stærðum A, B, C og D
Áletrun merkjanna hefst á bókstöfunum RN og fylgja þeim þrír tölustafir

Aukamerki
Eru notuð þegar búnaður eða farmur skyggir á skráningarmerki ökutækis.
Hafa sömu áletrun og sama lit og skráningarmerki ökutækisins
Fást í stærðum A, B og D


Þjónustuaðili
Samgöngustofa