Einkanúmer er tegund númera þar sem umsækjandi velur sjálfur áletrunina.
Umsókn um einkanúmer
Eigandi ökutækis, meðeigandi eða umráðamaður geta sótt um og verið rétthafar að einkanúmeri. Til að sækja um einkanúmer þarf umsækjandi að eiga ökutæki eða vera skráður meðeigandi eða umráðamaður þess. Aðeins er hægt að skrá einkanúmer á bíla og mótorhjól í almennri notkun.
Einkanúmerið fylgir kennitölu umsækjanda en ekki ökutækinu. Rétturinn til einkanúmers gildir í átta ár. Rétthafi einkanúmers getur endurnýjað réttinn á mínum síðum á Ísland.is allt að þremur mánuðum áður en rétturinn rennur út.
Áletrun einkanúmers
Leyfilegt er að nota tvo til sex íslenska bókstafi og tölustafi (samtals sex stafabil).
Leyfilegt er að hafa eitt autt bil í númerinu og telst það með í heildarfjölda stafabila.
Áletrun má ekki vera tveir bókstafir og þrír tölustafir eða þrír bókstafir og tveir tölustafir, eins og fastanúmer.
Ekki er leyfilegt að nota tákn til dæmis bandstrik, punkta og kommur.
Ekki er leyfilegt að sækja um númer sem þegar er í notkun eða telst of líkt öðru númeri í notkun (JÓN1 og JÓN 1 eða JON og JÓN).
Samgöngustofa metur umsóknir um einkanúmer og getur hafnað þeim sem ekki standast skilyrðin eða eru líkleg til að valda hneykslan.
Endurnýjun einkanúmers
Réttur til einkanúmers gildir í átta ár og sækja þarf um endurnýjun að þeim tíma liðnum. Hægt er að endurnýja einkanúmer þegar allt að þrír mánuðir eru eftir af gildistíma gegn greiðslu réttindagjalds. Hafi númerinu ekki verið skilað inn við lok gildistíma er settur lás á ökutækið. Lásinn kemur í veg fyrir að hægt sé að láta skoða ökutækið eða framkvæma eigendaskipti. Lásinn er tekinn af ökutækinu þegar réttindagjald er greitt eða númerinu skilað inn til Samgöngustofu. Þegar rétturinn rennur út má úthluta númerinu til nýs rétthafa.
65 ára og eldri
Sé rétthafi orðinn 65 ára eða eldri þegar rétturinn rennur út þarf viðkomandi ekki að greiða gjald við endurnýjun. Miðað er við afmælisdag. Þetta á þó ekki við um þegar umsækjandi er 65 ára eða eldri við fyrstu umsókn, þá þarf viðkomandi að greiða fullt verð.
Sala ökutækis með einkanúmeri
Við sölu ökutækis heldur rétthafi réttinum að einkanúmerinu nema honum sé afsalað.
Ef ökutæki er skráð með einkanúmeri þarf að skipta því út fyrir fastanúmer áður en eigendaskipti fara fram. Ekki er hægt að framkvæma eigendaskipti á ökutæki sem er skráð með einkanúmeri.
Hægt er að afsala sér réttinum að einkanúmeri með umsókn. Við afsal verður áletrunin strax laus til úthlutunar.
Skila þarf einkanúmeraplötunum til Samgöngustofu. Eigandi getur þó heimilað nýjum eiganda að nota plöturnar ef þær eru heilar.
Skoðun ökutækja með einkanúmer
Sé síðasti stafur einkanúmers tölustafur ræðst skoðunarmánuður af honum, eins og með önnur skráningarmerki.
Sé síðasti stafur einkanúmers bókstafur er skoðunarmánuður ökutækisins maí.
Einkanúmer sem gjöf
Hægt er að kaupa einkanúmer og gefa sem gjöf hjá Samgöngustofu, annað hvort með gjafabréfi eða með því að kaupa númeraplötur með áletrun.
Afgreiðslutími
Framleiðsla á einkanúmerum tekur 3 virka daga. Ef óskað er eftir að fá númeraplöturnar sendar á skoðunarstöð utan höfuðborgarsvæðisins er afhendingartíminn lengri.
Athugið að ekki er send tilkynning eða póstur þegar númeraplötur eru tilbúnar.
Kostnaður
Við fyrstu umsókn
Réttindagjald 54.000 krónur
Framleiðsla númera 13.472 krónur (6.736 krónur stykkið)
Gjald fyrir skráningu 578 krónur
Samtals: 68.050 krónur
Við endurnýjun
Réttindagjald 54.000 krónur
Við flutning milli ökutækja í eigu rétthafa
Flutningsgjald 3.019 krónur
Gjald fyrir skráningu 578 krónur
Samtals: 3.597 krónur

Þjónustuaðili
Samgöngustofa