Fara beint í efnið

Endurnýjun á einkanúmeri

Umsókn um endurnýjun á einkamerki

Réttur til einkanúmers gildir í átta ár og sækja þarf um endurnýjun að þeim tíma liðnum. Hægt er að endurnýja einkanúmer hér að ofan þegar allt að þrír mánuðir eru eftir af gildistíma gegn greiðslu réttindagjalds. Ef einkanúmer hefur ekki verið endurnýjað áður en rétturinn rennur út þarf að fylla út umsókn um einkanúmer og skila til Samgöngustofu.

Lok gildistíma

Hafi númerinu ekki verið skilað inn við lok gildistíma er settur lás á ökutækið. Lásinn kemur í veg fyrir að hægt sé að láta skoða ökutækið eða framkvæma eigendaskipti. Einnig hefur lögreglan heimild til að fjarlægja plöturnar af ökutækinu. Lásinn er tekinn af ökutækinu þegar réttindagjald er greitt eða númerinu skilað inn til Samgöngustofu. Þegar rétturinn rennur út má úthluta númerinu til nýs rétthafa.

65 ára og eldri

Sé rétthafi orðinn 65 ára eða eldri þegar rétturinn rennur út þarf viðkomandi ekki að greiða gjald við endurnýjun. Miðað er við afmælisdag. Þetta á þó ekki við um þegar umsækjandi er 65 ára eða eldri við fyrstu umsókn, þá þarf viðkomandi að greiða fullt verð.

Umsókn um endurnýjun á einkamerki

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa