Fara beint í efnið

Umsókn um fornmerki

Umsókn um fornmerki

Fornmerki

Fornmerki eru skráningarmerki sem mega fara á ökutæki sem skráð eru fornökutæki og eru með fyrsta skráningardag fyrir árið 1989. Gerð og áletrun fornmerkja skal vera í samræmi við aldur ökutækis.

Umsókn um fornmerki

Til að geta sótt um fornmerki þarf ökutækið að vera skráð sem fornökutæki. Ef ökutækið er ekki þegar skráð sem fornökutæki þarf að sækja um breytingu á notkunarflokki áður en sótt er um fornmerki.

Eigandi, meðeigandi eða umráðamaður fornökutækis getur sótt um rétthafaskráningu á fornmerki hjá Samgöngustofu.

Fornmerki:

  • mega vera á bílum, mótorhjólum og dráttarvélum sem uppfylla aldursskilyrði

  • fylgja kennitölu rétthafa en ekki ökutækinu

  • eru skráð á rétthafa ótímabundið

Áletrun fornmerkis

Áletrun þarf að vera í samræmi við þær reglur sem voru í gildi þegar ökutækið var fyrst skráð. Heimilt er að taka upp áletrun sem var áður í notkun, sé ökutækið sem merkið var á afskráð. Fornmerki má ekki vera samhljóða öðru merki, hvort sem er fastanúmer, einkamerki eða annað fornmerki.

Framleiðsla og afhending

Aðeins er sótt um rétthafaskráningu fornmerkis hjá Samgöngustofu. Þegar umsókn hefur verið samþykkt sér rétthafi sjálfur um að láta framleiða merkin.

Samgöngustofa þarf að samþykkja merkin áður en þau eru afhent. Fornmerki eru alltaf afhent á skoðunarstöð.

Fornbílaklúbburinn hefur annast framleiðslu helstu gerða fornmerkja.

Afsal fornmerkis

Hægt er að afsala sér réttinum til fornmerkis með því að skila umsókn til Samgöngustofu.

Rétthafi getur heimilað nýjum rétthafa að nota merkin áfram.

Skoðun ökutækja með fornmerki

Skoðunarmánuður fornökutækja er maí og skal því skoða ökutækið fyrir lok júlí.

Fornökutæki fara í reglubundna skoðun annað hvert ár. Skoðunarárið miðast við árið sem ökutækið var fyrst skráð.

Kostnaður

  • Réttindagjald fornmerkis er 5.000 krónur

  • Skráning fornmerkis á eða af ökutæki er 578 krónur

  • Kostnaður við framleiðslu merkjanna er breytilegur eftir framleiðanda.

Umsókn um fornmerki

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa