Verkkaupi, eða aðili sem hefur umsjón með byggingarframkvæmd eins og verktaki eða verkefnisstjóri, skal senda tilkynningu til Vinnueftirlits áður en vinna hefst við byggingarframkvæmd eða tímabunda mannvirkjagerð. Á það við ef um er að ræða byggingarvinnustað þar sem ráðgert er að vinna sé meiri en:
30 vinnudagar og fleiri en 20 starfsmenn eru í vinnu samtímis
500 dagsverk
Með því að slá inn upplýsingar í reiknivélina hér að neðan má kanna fjölda dagsverka og hvort verkið sé tilkynningarskylt.
Tilkynning
Fylla þarf út upplýsingar um:
verkkaupa
verkefnastjóra eða byggingastjóra
samræmingaraðila öryggis-og heilbrigðismála
byggingasvæði
fyrirhugaður upphafsdagur og verklok
fjölda starfsmanna
verktaka
Afgreiðslutími
Allt að 14 dagar.
Lög og reglur
Þjónustuaðili
VinnueftirlitiðÁbyrgðaraðili
Vinnueftirlitið