Fara beint í efnið

Atvinnusjúkdómar og atvinnutengdir sjúkdómar

Mikilvægt er að greina hvort orsakatengsl séu á milli sjúkdóms og vinnu eða aðstæðna í vinnuumhverfi. Þannig má koma í veg fyrir að annað starfsfólk fái sama sjúkdóm.

Með atvinnusjúkdómi er átt við sjúkdóm sem talinn er upp í viðauka I við reglugerð um atvinnusjúkdóma sem orsakast af vinnu eða aðstæðum í vinnuumhverfi.

Með atvinnutengdum sjúkdómi er átt við sjúkdóm eða sjúkdómsástand sem kemur fram, versnar eða ágerist vegna vinnu eða aðstæðna í starfsumhverfi en telst þó ekki orsakast beint af vinnu eða aðstæðum í starfsumhverfi á grundvelli læknisfræðilegra gagna og annarra viðurkenndra gagna.

Sjúkratryggingar hafa það hlutverk að meta hvort sjúkdómur sem talinn er upp í viðauka I við reglugerð um atvinnusjúkdóma hafi orsakast af vinnu eða aðstæðum í vinnuumhverfi.

Dæmi um atvinnusjúkdóma er heyrnarskerðing sem kemur til vegna hávaða á vinnustað, öndunarfærasjúkdómar, húðsjúkdómar og sjúkdómar tengdir asbestmengun.

Starfsfólk tilkynnir um atvinnusjúkdóm

Starfsfólk sem telur sig vera með atvinnusjúkdóm skal tilkynna það atvinnurekanda og leita til læknis. Mikilvægt er að upplýsa atvinnurekanda sem fyrst þegar einkenni gera vart við sig til að gefa honum tækifæri á að grípa til nauðsynlegra aðgerða til að koma í veg fyrir hugsanlega áhættuþætti.

Starfsfólk sem er slysatryggt á Íslandi er heimilt að sækja um bætur vegna atvinnusjúkdóma sem þeir hafa greinst með til Sjúkratrygginga. Sjúkratryggingar meta hvort það sé orsakasamband milli sjúkdómsins og vinnu eða vinnuumhverfi þannig að sjúkdómur getir talist atvinnusjúkdómur.

Atvinnurekandi heldur skrá yfir atvinnusjúkdóma og óhöpp sem geta valdið heilsutjóni

Atvinnurekanda ber að halda skrá yfir þá sjúkdóma sem hann hefur rökstuddan grun eða vitneskju um að eigi rætur sínar að rekja til tiltekins starfs eða annarra aðstæðna á vinnustað. Einnig ber honum að skrá óhöpp sem gætu valdið heilsutjóni, svo sem mengun vegna efna sem geta haft skaðleg áhrif á heilsu fólks.

Áhættumat og forvarnir geta komið í veg fyrir atvinnusjúkdóma og atvinnutengda sjúkdóma. Þegar grunur leikur á að sjúkdómur starfsmanns tengist vinnuumhverfi er mikilvægt að atvinnurekandi bregðist við til að greina hugsanlegar orsakir og grípi til nauðsynlegra forvarna til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu sjúkdómsins innan starfsmannahópsins.

Sjúkratryggingar taka ákvörðun um hvort sjúkdómur telst viðurkenndur atvinnusjúkdómur

Sjúkratryggingar hafa það hlutverk að taka ákvörðun um hvort sjúkdómur sem fólk greinist með geti talist viðurkenndur atvinnusjúkdómur og þar með um rétt þess til bóta samkvæmt lögum um slysatryggingar almannatrygginga, með síðari breytingum, og reglugerð nr. 390/2023, um atvinnusjúkdóma. Í því felst meðal annars að meta hvort nánar tilgreind skilyrði um orsakasamband milli sjúkdóms og starfsumhverfis hlutaðeigandi séu uppfyllt og þar með hvort sjúkdómurinn geti talist sem viðurkenndur atvinnusjúkdómur.

Til að einfalda stjórnsýslu þessara mála þannig að ekki þurfi að tilkynna um tilvik til fleiri en eins stjórnvalds senda Sjúkratryggingar Vinnueftirlitinu upplýsingar um tilvik þar sem sjúkdómar hafa verið viðurkenndir sem atvinnusjúkdómar, sbr. 4. mgr. 79. gr. um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustað.

Vinnueftirlitið skráir atvinnusjúkdóma og atvinnutengda sjúkdóma

Vinnueftirlitið fer með skilgreint forvarnarhlutverk í lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og er ætlað að halda skrá yfir viðurkennda atvinnusjúkdóma hér á landi þannig að fáist heildaryfirsýn yfir tíðni og dreifingu atvinnusjúkdóma í einstaka starfsgreinum ásamt þróun þeirra. Áhersla er ávallt á forvarnir þannig að koma megi í veg fyrir að atvinnusjúkdomar endurtaki sig á vinnustöðum landsins og/eða innan einstakra starfsgreina.

Listi yfir atvinnusjúkdóma

Reglugerð um atvinnusjúkdóma fjallar um orskasamband milli sjúkdóms og vinnuumhverfis og þar er einnig að finna lista yfir þá sjúkdóma sem geta talist atvinnusjúkdómar þegar Sjúkratryggingar meta að þeir hafi orsakast af vinnu eða vinnuumhverfi.

Einnig er hér að finna leiðbeiningar frá Evrópusambandinu um viðmið við greiningu á atvinnusjúkdómum.

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið