Sjóður
Listamannalaun
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Áætlað næst í ágúst 2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Menning og listir
Tegund
Starfslaun
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Starfslaun listamanna
Listamannalaun eru veitt sjálfstætt starfandi listamönnum til að efla menningu og listir á Íslandi með launum fyrir listsköpun.
Sjóður
Listamannalaun
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Áætlað næst í ágúst 2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Menning og listir
Tegund
Starfslaun
Starfslaun listamanna
Lokað fyrir umsóknir / Áætlað næst í ágúst 2026
Mánaðarleg upphæð listamannalauna árið 2025 er 560.000 kr.
Hverjir geta sótt um?
Sjálfstætt starfandi listamenn:
Hönnuðir, myndlistarmenn, rithöfundar, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur, tónskáld og kvikmyndahöfundar.
Í umsókn er valinn viðeigandi launasjóður.
Hvernig er sótt um?
Sækja skal um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.
Umsóknir eru einstaklingsumsóknir og nota þarf rafræn skilríki verið gerð þeirra.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel allar leiðbeiningar og stofna umsókn tímanlega.
Svör við spurningum
Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu listamannalaun@rannis.is eða í símanumerum 515 5839 og 515 5838.
Frekari ábendingar fyrir umsækjendur:
Umsókn má skrifa á íslensku eða ensku.
Hefjið umsóknargerð tímanlega og ekki skila umsókn á síðasta degi.
Ef notandi er erlendis gæti þurft að nota auðkennisappið í stað auðkenningar gegnum símanúmer.
Ætli listamaður að sækja um úr fleiri en einum launasjóði, þarf að senda inn eina umsókn fyrir hvern sjóð.
Aðeins er hægt að senda eina umsókn í hvern launasjóð. Ef sendar eru fleiri gildir nýjasta umsókn.
Ef umsókn listamanns er háð því að annar listamaður fái úthlutun þarf að hafa umsóknarnúmer þess umsækjanda tiltækt við gerð umsóknar.
Sviðslistahópar eiga ekki að senda einstaklingsumsóknir, heldur sækja um í launasjóð sviðslistafólks í gegnum umsókn Sviðslistasjóðs.
Eftir að umsókn er send sést hún undir „Umsóknir->Innsendar“ á mínum síðum umsækjanda og er það öruggasta staðfesting þess að umsókn sé móttekin.
Þjónustuaðili