Opið fyrir umsóknir til Listamannalauna 2027
5. ágúst 2026
Tilgangur listamannalauna er að efla listsköpun í landinu.

Upplýsingar fyrir umsækjendur (aðgengilegt á vef listamannalauna)
Matskvarði umsókna
Áherslur stjórnar listamannalauna 2026-2028
Reglugerð listamannalauna
Staðlaðir ákvörðunartextar umsókna
Leiðbeiningar um gerð umsókna og skýrslna
Samkvæmt lögum um listamannalaun eru til úthlutunar 2370 mánaðarlaun, 197,5 árslaun:
100 mánuðir úr launasjóði hönnuða og arkitekta, 8,3 árslaun
540 mánaðarlaun úr launasjóði myndlistarmanna, 45 árslaun
640 mánaðarlaun úr launasjóði rithöfunda, 53,3 árslaun
240 mánaðarlaun úr launasjóði sviðslistafólks, 20 árslaun
230 mánaðarlaun úr launasjóði tónlistarflytjenda, 19,2 árslaun
240 mánaðarlaun úr launasjóður tónskálda, 20 árslaun
100 mánaðarlaun úr launasjóði kvikmyndahöfunda, 8,3 árslaun
140 mánaðarlaun úr Vegsemd, 11,7 árslaun
Í umsóknum er óskað eftir:
Lýsingu á vinnu og tímaáætlun (70% vægi)
Ferli umsækjenda (30% vægi)
Ef umsókn fellur undir Vegsemd víxlast matsþættir
Nánar um um Vegsemd: Vegsemd er sjóður fyrir starfandi listamenn 67 ára og eldri, sem hafa varið starfsævi sinni til listsköpunar og skarað fram úr á sínu sviði. Ekki er sótt um í Vegsemd heldur geta umsóknir listamanna 67 ára og eldri í ofangreinda sjóði einnig fallið undir Vegsemd nema listamaður segi sig frá þeim valkosti. Við mat umsókna er vægi ferils 70%.
Umsóknir eru einstaklingsumsóknir og nota þarf rafræn skilríki við gerð þeirra.
Sviðslistahópar sækja um í launasjóð sviðslistafólks í gegnum umsókn Sviðslistasjóðs.
Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef áfangaskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009. Skýrslur eru á „mínum síðum“ umsækjanda.
Fyrirspurnir: listamannalaun@rannis.is eða símar 515 5839 / 515 5838
Listamenn eru hvattir til að skila umsóknum tímanlega.
Opið er fyrir umsóknir til kl. 15:00, þann 1. október 2026.