Skyldur lyfjafyrirtækja í lyfjaskorti
Lyfjafyrirtæki skyld til að tilkynna lyfjaskort tímanlega
Samstarf lyfjafyrirtækja, Lyfjastofnunnar og heilbrigðisstarfsmanna er mikilvægt til að vinna gegn áhrifum lyfjaskorts. Gott upplýsingaflæði og nægur fyrirvari er lykillinn að því að hægt sé að leita lausna. Þannig má ýmist koma í veg fyrir lyfjaskort eða minnka þau áhrif sem hann getur haft á lyfjanotendur.
Markaðsleyfishöfum ber skylda til að tilkynna um lyfjaskort til Lyfjastofnunnar með að minnsta kosti tveggja mánaða fyrirvara samkvæmt lyfjalögum nr. 100/2020
Hvernig á að tilkynna?
Tilkynningar í gegnum Ísland.is
Stakar tilkynningar um lyfjaskort eru sendar í gegnum á island.is, þá þarf starfsmaður fyrirtækis að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.
Ef senda þarf inn nýjar upplýsingar, svo sem um breyttar dagsetningar vegna lyfjaskorts sem þegar hefur verið tilkynntur, skal senda þær upplýsingar á netfangið lyfjaskortur@lyfjastofnun.is.
Tilkynningar í gegnum vefþjónustur
Lyfjastofnun býður upp á forritunarskil (API þjónustu) sem gerir fyrirtækjum kleift að senda inn lyfjaskortstilkynningar og sækja upplýsingar rafrænt. Þjónustunni er ætlað að gera ferlið skilvirkara og draga úr hnökrum í samskiptum.
API þjónustan er ókeypis og er valkvæð viðbót við hina hefðbundnu leið.
Tilkynningar fyrir erlenda aðila
Erlendir aðilar geta ekki stuðst við rafrænt eyðublað en í boði er að senda lyfjaskortstilkynningu á word eyðublaði.
Tilkynningar til Lyfjastofnunnar Evrópu (EMA)
Markaðsleyfishöfum ber skylda til að tilkynna allan skort á lyfjum með miðlægt markaðsleyfi í evrópska lyfjaskortsgrunninn (ESMP).

Þjónustuaðili
Lyfjastofnun