Lyfjaskortur og úrræði fyrir lyfjanotendur
Stundum kemur það fyrir að lyf sem einstaklingar þurfa á að halda eru ekki fáanleg í apóteki. Þá getur verið að um lyfjaskort sé að ræða. Lyfjaskortur er vaktaður af Lyfjastofnun og í mikilvægum tilfellum eru birtar fréttir um lyfjaskort.
Það er kallað lyfjaskortur þegar lyf sem einstaklingur þarf er ekki fáanlegt þrátt fyrir að það eigi að vera til á markaði. Lyfjafyrirtæki bera ábyrgð á því að eiga nægar birgðir af lyfjum í sölu til að tryggja þörf notenda. Þetta getur gerst af ýmsum ástæðum og er ekki einsdæmi hér á landi.
Hlutverk Lyfjastofnunar samkvæmt lyfjalögum er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga.
Athugið! Ef þú notar undanþágulyf er gott að vita að heildsölum er ekki skylt að tilkynna um skort á slíkum lyfjum og því getur Lyfjastofnun ekki fylgst nákvæmlega með skorti á undanþágulyfjum.
Hvað get ég gert þegar erfitt er að fá lyfin sem ég þarfnast?
Hverju sinni skortir tiltölulega lítinn hluta þeirra fjölmörgu lyfja sem eru markaðssett á Íslandi. Skortur á lyfjum sem eru til sölu getur þó komið upp af ýmsum ástæðum og íslenskur markaður fyrir lyf er viðkvæmari en í mörgum öðrum löndum vegna smæðar hans og landfræðilegrar staðsetningar.
Þegar það kemur fyrir að lyf sé ekki fáanlegt getur það haft í för með sér óvissu og óþægindi. Í slíkum tilfellum er hægt að skoða eftirfarandi úrræði:
1. Leitaðu upplýsinga um skortinn á lyf.is
Hægt er að nálgast allar upplýsingar sem Lyfjastofnun birtir um lyfjaskort í Sérlyfjaskrá, þetta getur hjálpað lyfnotendum að átta sig á stöðunni.
2. Leitaðu ráða í apótekinu
Oft er hægt að leysa lyfjaskortinn beint í apótekinu. Starfsfólkið getur kannað hvort:
sama lyf í öðrum styrkleika eða pakkningastærð sé fáanlegt
sambærilegt lyf frá öðrum framleiðanda sé til (samheitalyf)
lyfið sé fáanlegt í öðru apóteki
Ef apótekið getur ekki hjálpað með hefðbundnum leiðum gætu undanþágulyf verið í boði. Í ákveðnum tilvikum getur starfsfólk apóteka skipt yfir í undanþágulyf án þess að hafa samband við lækni — Lyfjastofnun hefur þá metið slík skipti örugg.
3. Hafðu samband við heilsugæsluna
Ef apótekið getur ekki leyst úr skortinum skaltu hafa samband við heilsugæsluna. Læknirinn getur metið hvort önnur lyfjameðferð henti og gefið út nýjan lyfseðil.
Góð ráð til að draga úr lyfjaskorti
Það er ábyrgð fyrirtækja sem flytja inn og setja lyf á markað að tryggja að lyf sé fáanlegt og um það gilda samræmd viðmið og reglur á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Þessi fyrirtæki eiga að tilkynna fyrirsjáanlegan lyfjaskort með að minnsta kosti tveggja mánaða fyrirvara til Lyfjastofnunar til að draga úr áhrifum lyfjaskorts á heilbrigðiskerfið og lyfnotendur. Lesa nánar um skyldur lyfjafyrirtækja í lyfjaskorti.
Samstarf lyfjafyrirtækja, Lyfjastofnunar og heilbrigðiskerfisins er mikilvægt til þess að draga úr áhrifum lyfjaskorts, en einstaklingar geta líka lagt sitt af mörkum með því að hafa eftirfarandi ráð í huga:
Kauptu ekki meira en þú þarft
Varastu að kaupa meira af þínum lyfjum en þú þarft á að halda. Hætt er við því að einhver annar sem þarf á lyfinu að halda grípi í tómt, og auk þess er nauðsynlegt að nota lyf áður en þau fyrnast.Endurnýjaðu lyfin tímalega
Það er gott að vera tímanlega í því að sækja næsta lyfjaskammt. Það gefur þér tækifæri til þess að bregðast við ef þörf er á.
Tilkynntu lyfjaskortinn til Lyfjastofnunar
Auðvelt er að tilkynna lyfjaskort nafnlaust í gegnum form á Ísland.is. Lyfjaskortsteymi Lyfjastofnunar yfirfer allar tilkynningar um lyfjaskort og fylgir þeim eftir.

Þjónustuaðili
Lyfjastofnun