Fara beint í efnið

Upplýsingar og úrræði fyrir heilbrigðisstarfsfólk í lyfjaskorti

Lyfjafræðingar gegna mikilvægu hlutverki þegar lyfjaskortur kemur upp og eru oft í þeirri stöðu að upplýsa lyfjanotendur um skortinn og möguleg úrræði. Lyfjastofnun heldur utan um skráningar á lyfjaskorti frá lyfjafyrirtækjum og gefur út ráðleggingar til lyfjafræðinga og heilbrigðisstarfsmanna í sérlyfjaskrá, www.lyf.is.

Upplýsingar um lyfjaskort í Sérlyfjaskrá

Hægt er að nálgast allar upplýsingar sem Lyfjastofnun birtir um lyfjaskort í Sérlyfjaskrá.

Lyfjastofnun heldur utan um lista yfir öll lyf í skorti. Lyfin eru sérmerkt og þeim fylgja ítarlegri upplýsingar um lyfjaskortinn.

Allar upplýsingar um lyfjaskort birtast á einum stað til að einfalda ferlið fyrir sjúklinga, lækna og starfsfólk apóteka. Notandi getur líka notað leitina í sérlyfjaskrá og séð hvort ákveðið lyf er merkt.

Lyfjaskortsspjald í Sérlyfjaskrá

Ef smellt er á lyfjaskortsspjaldið/merkið birtast ítarlegar upplýsingar um lyfjaskortinn:

Vefþjónusta fyrir ávísanakerfi lækna

Lyfjastofnun býður upp á miðlun allra ofangreindra upplýsinga sem birtast í sérlyfjaskrá, í ávísanakerfi lækna með vefþjónustu.

Þar birtast einnig þær ráðleggingar sem Lyfjastofnun hefur gefið út í tengslum við skort tiltekinna lyfja; um hvort hægt sé að ávísa lyfi í skorti og málið verði leyst í apóteki eða hvort ávísa þurfi öðru lyfi vegna skorts.

Töluvert hagræði getur verið af því að læknar sjái þessar upplýsingar um lyfjaskort þegar verið er að ávísa lyfjunum, það dregur úr álagi á heilbrigðiskerfið og lyfjanotendur. Þannig er dregið verulega úr líkunum á því að lyfjanotandi grípi í tómt í apóteki og þurfi að leita aftur til læknisins og fá nýja lyfjaávísun.

Þeir læknar sem styðjast við ávísanakerfi sem ekki lesa skortsupplýsingar frá Lyfjastofnun geta farið inn á lyf.is (Sérlyfjaskrá) og nálgast sambærilegar upplýsingar.

Heimild lyfjafræðinga til að breyta ávísun í undanþágulyf

Í Sérlyfjaskrá er einnig listi sem heldur utan um öll lyf sem Lyfjastofnun hefur gefið heimild fyrir að lyfjafræðingar megi skipta út fyrir undanþágulyf.

Heimild lyfjafræðinga til að breyta ávísun í undanþágulyf gildir á meðan lyfjaskortur stendur yfir í viku til viðbótar til að tryggja að lyfið hafi borist til allra landshluta.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið sé ekki markaðssett á Íslandi og sé þar af leiðandi í erlendum pakkningum þegar þeir nýta þessa heimild. Auk þess skal gerð grein fyrir mögulegum aukaverkunum lyfsins og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Þessi heimild á einungis við þegar um lyfjaávísun læknis er að ræða, ekki er heimilt að afgreiða undanþágulyfið í lausasölu.

Listar lyfjafyrirtækja um lyfjaskort

Eftirfarandi er listi yfir fyrirtæki sem hafa heimild til lyfjainnflutnings og/eða heildsöludreifingar lyfja á Íslandi. Nánari upplýsingar um komutíma lyfja í skorti má finna á biðlista hvers fyrirtækis.

Þjónustuaðili

Lyfja­stofnun