Skotvopn
Sækja um skotvopnaleyfi
Þú þarft skotvopnaleyfi lögreglu til að eiga og nota:
skotvopn og skotfæri,
íhluti og aukahluti fyrir skotvopn.
Umsækjendur þurfa að standast próf í meðhöndlun skotvopna og að öðru leyti uppfylla skilyrði lögreglu.
Til að fá skotvopnaleyfi þarftu:
Læknisvottorð vegna skotvopnaleyfis frá heimilislækni.
Staðfestingu tveggja meðmælenda eldri en 20 ára.
Nýlega passamynd.
Að sækja um námsheimild til þátttöku í skotvopnanámskeiði hjá lögreglu og skila gögnum.
Skrá þig á skotvopnanámskeið og standast bóklegt og verklegt próf um meðhöndlun skotvopna.
Í umsóknarferlinu heimilar þú lögreglu að skoða sakavottorð. Lögregla skoðar málaskrá sína og sakavottorð þitt við vinnslu umsókna. Lesa meira um skilyrði og fylgigögn.
Gildistími
Skotvopnaleyfi gilda í hámark 5 ár. Lesa nánar um endurnýjun leyfanna.
Kostnaður
Skotvopnaleyfi kostar 6.500 krónur.
Skotvopnaskírteini
Lögreglan gefur út stafrænt skotvopnaskírteini til þeirra sem standast prófið.
Þú getur nálgast skírteinið þitt í Ísland.is appinu eða á Mínum síðum Ísland.is
Fyrirspurnum eða kvörtunum vegna umsókna skal beina til þess embættis þar sem þú átt lögheimili.
Þjónustuaðili
Lögreglan