Skotvopn
Til að mega eiga eða nota skotvopn á Íslandi þarf að uppfylla ákveðin skilyrði og fá útgefið skotvopnaleyfi hjá lögreglunni.
Fyrst þarf viðkomandi að ljúka námskeiði í meðferð skotvopna og standast bóklegt og verklegt próf. Ef viðkomandi vill eiga skotvopn þarf einnig að sækja um heimild til þess.
Umsækjendur um skotvopnaleyfi þurfa að uppfylla þessar grunnkröfur:
Hafa náð 20 ára aldri.
Vera sjálfráða og andlega heilbrigðir.
Hafa hreint sakavottorð. Ekki hafa til dæmis brotið gegn hegningarlögum, vopnalögum, áfengis- og fíkniefnalögum eða lögum um dýravernd.
Ferlið í stuttu máli
Umsækjandi aflar sér læknisvottorðs vegna skotvopnaleyfis hjá heimilislækni.
Umsækjandi sækir um heimild til þátttöku í skotvopnanámskeiði, skilar gögnum og heimilar lögreglu að skoða sakavottorð. Einnig þarf að veita upplýsingar um tvo meðmælendur, eldri en 20 ára, sem þekkja umsækjanda persónulega og treysta honum til þess að nota skotvopn.
Þegar leyfi er fengið skráir umsækjandi sig á skotvopnanámskeið og lýkur prófi í meðferð skotvopna.
Lögreglan gefur út stafrænt skotvopnaleyfi fyrir viðkomandi (kostar 6.500 kr. og gildir í allt að 5 ár).
Þegar umsækjandi er kominn með skotvopnaleyfi getur hann sótt um heimild til lögreglunnar um að eignast tiltekið skotvopn sem samræmist leyfinu.
Lögreglan móttekur og vinnur úr umsókninni. Ef umsókn er samþykkt fær seljandi vopnsins tilkynningu í pósthólf á Ísland.is og getur þá staðfest kaupin.
Þegar sala er staðfest færist skotvopn á nýjan eiganda. Þegar sú skráning liggur fyrir má afhenda umsækjanda skotvopnið.
Örugg geymsla
Áður en vopn er keypt þarftu að sýna fram á að þú hafir yfir að ráða vottuðum og læstum skotvopnaskáp til að geyma vopnin og skotfærin á öruggan hátt.
Þjónustuaðili
Lögreglan