Fara beint í efnið

Aðeins einstaklingar með gilt skotvopnaleyfi mega kaupa eða eiga skotvopn.

Sækja þarf um heimild til þess að eignast skotvopn til lögreglunnar og veita í umsóknarferlinu ákveðnar upplýsingar meðal annars um landsnúmer vopnsins, fyrirhugaða notkun og geymslu þess.

Ferlið í stuttu máli

  1. Þú sækir um heimild til að eignast skotvopn sem þú hefur gilt skotvopnaleyfi fyrir.

  2. Lögregla vinnur úr umsókninni.

  3. Seljandi fær tilkynningu í pósthólf sitt á Ísland.is þegar samþykkja má kaupin.

  4. Þegar sala er staðfest færist skotvopn á nýjan eiganda. Þá má afhenda skotvopnið til nýs eiganda.

Umsókn um heimild til að eignast skotvopn


Skráning skotvopna

Skotvopn eru skráð á eiganda við staðfesta sölu.

Þú getur skoðað skotvopnaleyfi og byssueign þína á Mínum síðum Ísland.is.

Ef þú lánar öðrum skotvopn þarf að að tilkynna það.

Að erfa skotvopn

Við andlát eiganda skotvopns þarf að ráðstafa því tafarlaust.

Skotvopn má aðeins skrá á aðila sem hefur gilt leyfi til að eiga sambærilegt vopn.

Dánarbú

Nýjan vörslumann skal tilkynna til sýslumanns.

Þegar skotvopni er ráðstafað og nýr vörslumaður skráður, er hægt að gefa út skiptaheimild á dánarbúið.

Þjónustuaðili

Lögreglan