Fara beint í efnið

Skoðaðu saltið

Íslendingar neyta meira af salti en mælt er með – en margir vita ekki af því. Mest af saltinu er dulið í tilbúnum matvörum. Það er heilsufarslegur ávinningur af því að minnka saltneyslu því þannig má draga úr hækkun blóðþrýstings, en háþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Áhrif þess að draga úr saltneyslu eru mest hjá þeim sem eru með of háan blóðþrýsting og hjá þeim sem eru yfir kjörþyngd en einnig má vinna gegn þeirri blóðþrýstingshækkun sem yfirleitt fylgir hækkandi aldri. Samkvæmt ráðleggingum um mataræði er mælt með að fullorðnir neyti ekki meira en sem nemur 6 grömmum af salti á dag. Hér getur þú metið saltneyslu þína.

Til þess að vekja athygli á áhrifum of mikillar saltneyslu á heilsu hefur embætti landlæknis í samvinnu við systurstofnanir í Noregi, Danmörku og Svíþjóð látið gera stutt myndband um salt.

7 staðreyndir um salt

Stærstur hluti salts í fæðu, eða um þrír fjórðu, kemur úr tilbúnum matvælum, svo sem unnum kjötvörum, brauði, ostum, pakkasúpum og -sósum, tilbúnum réttum og skyndibitum. Embætti landlæknis hvetur neytendur til að skoða saltið í matvörum og finna leiðir til að minnka saltneysluna. Framleiðendur eru einnig hvattir til að minnka smám saman saltinnihald í matvörum sínum. Sjá nánar í 7 staðreyndum um salt.

Að venja sig á minna salt

Til eru einföld ráð um hvernig hægt er að minnka saltnotkun við matseld heima við og uppskriftir að heilsusamlegum réttum sem innihalda lítið salt en eru þó bragðmiklir. Einnig eru gefin ráð um hvernig á að lesa á umbúðir matvara úti í búð:

  • Snúið pakkningunni við, skoðið saltið í næringargildismerkingu og berið saman – veljið svo vöruna með minna saltinnihaldi. Einnig er hægt að leita eftir Skráargatinu en það er á vörum sem innihalda minna salt en sambærilegar vörur sem ekki uppfylla skilyrði til að bera merkið.

Skoðaðu saltið. Merki

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis