Fara beint í efnið

Skipan stjórnar og/eða prókúruhafa trú- eða lífsskoðunarfélags

Tilkynning um fyrstu stjórn/breytingu á stjórn trú- eða lífsskoðunarfélags

Tilkynningu um breytingu á prókúruumboði trú- eða lífsskoðunarfélags

Stjórn og prókúruhafar skulu ávallt skipaðir í samræmi við ákvæði gildandi samþykkta. Upplýsingar um kennitölur og netföng stjórnarmanna og prókúruhafa skulu skráðar í viðeigandi reiti.

Samkvæmt ákvæðum 7. gr. a. laga nr. 108/1999 um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög með síðari breytingum, ber stjórnarmanni, framkvæmdastjóra og skipuðum fjárvörsluaðila (prókúruhafa) trú- og lífsskoðunarfélaga, að uppfylla eftirtalin skilyrði:

  • Vera lögráða.

  • Hafa forræði á búi sínu.

  • Hafa ekki á síðustu þremur árum hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur fyrir verknað sem brýtur gegn almennum hegningarlögum, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. eða lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda.

  • Minnst helmingur stjórnarmanna skal vera búsettur hér á landi.

Áður en til skráningar breyttrar stjórnar eða prókúruhafa getur komið þarf embættið að fá sent vottorð um að nýr stjórnarmaður og prókúruhafi hafi forræði á búi sínu. Nálgast má vottorðið á island.is hér.

Þá þarf embættið að kalla eftir staðfestingu sakaskrár ríkisins á að ekki hafi fallið dómur sem fer í bága við ofangreind skilyrði.

Tilkynning um stjórn og prókúruhafa skal sent í netfangið truoglif@syslumenn.is ásamt afriti af viðeigandi fundargerð.

Sýslumaður annast skráningu stjórnar og prókúruhafa í málakerfum embættisins og tilkynnir fyrirtækjaskrá Skattsins um skipan þeirra.

Sé skráningu nýrrar stjórnar eða prókúruhafa hafnað, eða geri sýslumaður athugasemdir við framkomna tilkynningu, skal hlutaðeigandi aðilum veittur kostur á að bæta úr því sem ábótavant þykir.

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuðborgarsvæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Austurland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vesturland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Suðurland

Mán. til fös. 9 - 15

Vestfirðir

Mán. til fim. 9:00 - 15
Fös. 9:00 - 13:30

Vestmannaeyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 -14

Norðurland vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15

Norðurland eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14