Fara beint í efnið

Rekstrarleyfi til farþegaflutninga

Umsókn um rekstrarleyfi til farþegaflutninga / Endurnýjun

Skilyrði rekstrarleyfis til farþegaflutninga

Skilyrði fyrir rekstrarleyfi til farþegaflutninga eru eftirfarandi:

  1. Hafa fullnægjandi fjárhagsstöðu sem miðast við fjölda ökutækja. Rekstraraðili verður að hafa eigið fé og sjóði sem jafngilda a.m.k. kr. 1.283.400 fyrir fyrsta ökutæki og kr. 713.000 á hvert ökutæki umfram það. Áritaður ársreikningur eða staðfest skattframtal rekstraraðila eru fullnægjandi gögn til að sýna fram á eiginfjárstöðu umsækjanda.

  2. Hafa viðeigandi starfshæfni. Námskeið fyrir rekstrarleyfishafa í Ökuskólanum í Mjódd. Námskeiðin eru haldin tvisvar sinnum á ári en veitt eru bráðabirgðaleyfi í allt að eitt ár svo forráðamenn rekstrarleyfis hafi færi á að sækja námskeið innan þess tíma.

  3. Gott orðspor. Forráðamaður rekstrarleyfis þarf að framvísa sakavottorði, sem er aðgengilegt á island.is.

  4. Lögheimili forráðamanns þarf að vera skráð innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).

  5. Engin vanskil á opinberum gjöldum, hvorki við innheimtuaðila ríkis né sveitarfélaga.

  6. Hafa tilkynnt starfsrekstur til Skattsins. Atvinnugreinaflokkun viðkomandi reksturs þarf að tengjast atvinnugreininni með einhverjum hætti.

  7. Rekstraraðili þarf að tilkynna bílnúmer sem tilheyra rekstrinum.

  8. Rekstraraðili sem sækir um rekstrarleyfi í tengslum við ferðaþjónustu þarf að hafa leyfi ferðasala dagsferða eða ferðaskrifstofuleyfi frá Ferðamálastofu.

Umsókn um rekstrarleyfi til farþegaflutninga / Endurnýjun

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa