Innflutningur ökutækis með búslóð
Greiða þarf innflutningsgjöld (aðflutningsgjöld) þegar ökutæki á erlendum númerum er flutt inn með búslóð, við flutning lögheimilis til landsins.
Hægt er að fresta greiðslunni um einn mánuð frá því að ökutækið kemur til landsins (miðast við komudag skips/flutningsfars).
Gjöld
Innflutningsgjöldin eru:
vörugjald
virðisaukaskattur
úrvinnslugjald (á rafgeyma og hjólbarða sem fylgja ökutækinu)
Innflutningsgjöld eru greidd af tollverði ökutækisins. Tollverð ökutækis samanstendur af verði ökutækis við innflutning, flutningsgjaldi og flutningstryggingu.
Reiknivél til að reikna innflutningsgjöld →
Þú setur inn tollverðið, eiginþyngd ökutækis og upplýsingar um útblástur koltvísýrings (CO2) til að fá út heildarverð ökutækis (með innflutningsgjöldum) við komu til Íslands.
Verðmat ökutækis
Mat á verði ökutækis við innflutning byggist á:
kaupverði
tíma sem liðinn er frá kaupum
Þú þarft að sýna reikning við innflutning til staðfestingar á kaupverði. Ef enginn reikningur er til staðar er núvirði ökutækis áætlað með aðstoð tollamiðlara.
Hægt er að áætla verð í reiknivélinni.
Reiknivél til að verðmeta ökutæki sem flutt eru inn með búslóð →
Þú setur inn verð samkvæmt kaupreikningi, mánuðinn sem ökutækið var keypt og áætlaðan komutíma til Íslands.
Lækkun og undanþágur frá greiðslu vörugjalda
Umhverfisvæn ökutæki sem eru alfarið knúin rafmagni, vetni eða metani eru undanþegin vörugjöldum.
Einnig gilda sérstakar reglur um bifhjól, reiðhjól og sérsmíðaðar bifreiðar til akstursíþrótta.
Sjá nánar um ökutæki sem eru undanþegin vörugjöldum að hluta eða öllu leiti.
Frestun greiðslna
Skilyrði fyrir frestun greiðslna um einn mánuð:
Búseta erlendis: Sá sem flytur inn bíl eða ökutæki verður að hafa haft fasta búsetu erlendis í að minnsta kosti 1 ár samfellt áður en flutt er til landsins.
Tímasetning innflutnings: Ökutækið þarf að koma til landsins eigi síðar en einum mánuði eftir að þú sjálfur kemur til landsins.
Tilkynning (E-9): Þú þarft að fylla út yfirlýsingu (eyðublað E-9) vegna innflutningsins.
Lögheimili á Íslandi: Þú verður að skrá lögheimili í landinu innan mánaðar frá komu ökutækisins.
Ferlið
Þjónustuaðili
Skatturinn