Fara beint í efnið

Að flytja inn búslóð til Íslands

Þegar þú flytur til Íslands þarft þú ekki að greiða toll af húsgögnum, búsáhöldum eða persónulegum munum.

Skilyrði fyrir tollfrelsi

  1. Þú hefur búið erlendis í að minnsta kosti 12 mánuði áður en þú flytur til Íslands.

  2. Þú skráir lögheimili á Íslandi.

  3. Þú hefur átt munina í að minnsta kosti eitt ár fyrir flutning.

  4. Búslóðin kemur til Íslands innan 6 mánaða frá því þú flytur. Skatturinn getur lengt frest í 12 mánuði vegna sérstakra aðstæðna.

Undanþága

Hlutir og munir sem þú hefur átt í skemur en 1 ár má taka með upp að ákveðnu hámarki:

  • 18 ára eða eldri: hámark 140.000 krónur.

  • Yngri en 18 ára: hámark 70.000 krónur.

Ökutæki

Skráningarskyld og vélknúin ökutæki teljast ekki til búslóðar og greiða þarf innflutningsgjöld af þeim.

Sjá nánar um innflutning ökutækis með búslóð.

Reiðhjól eru undantekning og teljast til búslóðar.

Munir sem eru ekki búslóð

Eftirfarandi telst ekki vera búslóð og þarf að greiða innflutningsgjöld af:

  • Hlutir og búnaður notaður í atvinnuskyni.

  • Hlutir sem eru vegg- eða gólffastir, til dæmis innréttingar og parket.

  • Farartæki eins og bátar og flugvélar.

  • Kerrur og ferðavagnar.

Munir háðir innflutningsskilyrðum

Etirfarandi er háð sérstökum leyfum:

  • Matvæli og drykkjarvörur

  • Áfengi og tóbak

  • Skotvopn

  • Lyf

Sérstakar reglur gilda um innflutning á gæludýrum.

Sjá nánar um hvað má koma með í farangri eða panta til landsins.

Svona flytur þú búslóð til Íslands

  1. Bóka flutning búslóðar hjá flutningsaðila og hafa samband við tollmiðlara.

  2. Fylla út tollskýrslu í samstarfi við tollmiðlara.

  3. Afhenda tollmiðlara þau gögn sem þurfa að fylgja:

    • Farmbréf, fæst hjá flutningsaðila.

    • Reikningur vegna flutningskostnaðar, fæst hjá flutningsaðila.

    • Vörureikningar fyrir þær vörur sem eru tollskyldar.

  4. Miðlari sendir gögn til Skattsins áður en búslóð kemur til landsins.

  5. Við komu til landsins er búslóðin tollafgreidd hjá Skattinum. Tollmiðlari hefur samband ef frekari gögn vantar.

  6. Tollmiðlari hefur samband þegar búslóðin hefur verið tollafgreidd og þú mátt sækja hana.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn