Heilbrigðisvísindasjóður heilbrigðisráðuneytisins
Heilbrigðisvísindasjóður er samkeppnissjóður sem heyrir undir heilbrigðisráðherra og er í umsjón Rannís. Umsóknir eru metnar faglega með hliðsjón af meðal annars vísindalegu gildi verkefna, færni og aðstöðu umsækjenda og líkum á að verkefnin skili mælanlegum árangri og ávinningi.
Styrkirnir á styrkárinu 2026 eru ætlaðir rannsóknarhópum sem vinna að metnaðarfullum rannsóknum á sviði öldrunar.
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður Rannís). Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.
Fyrirspurnum má beina til sérfræðinga Heilbrigðisvísindasjóðs hjá Rannís á netfangið hvsjodur@rannis.is
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands