Sjóður
Heilbrigðisvísindasjóður
Staða
Opið fyrir umsóknir
Frestur til 01. október, kl. 15:00
Umsóknartímabil
14.08.2026 - 01.10.2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Rannsóknir
Tegund
Fjármögnun
Miðast við íslenskan tíma
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Rannsóknarstyrkur Heilbrigðisvísindasjóðs
Markmiðið er að efla rannsóknir í heilbrigðisvísindum frá grunnvísindum til lýðheilsu og klínískra rannsókna.
Sjóður
Heilbrigðisvísindasjóður
Staða
Opið fyrir umsóknir
Frestur til 01. október, kl. 15:00
Umsóknartímabil
14.08.2026 - 01.10.2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Rannsóknir
Tegund
Fjármögnun
Miðast við íslenskan tíma
Rannsóknarstyrkur Heilbrigðisvísindasjóðs
Opið fyrir umsóknir / Frestur til 01. október, kl. 15:00
Umsóknarfrestur er klukkan 15:00 að íslenskum tíma.
Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á metnaðarfullar rannsóknir á sviði öldrunar, í samræmi við áherslur stjórnar sjóðsins og stefnu stjórnvalda.
Veittir verða fimm eins árs rannsóknarstyrkir til rannsóknarhópa sem vinna að rannsóknum á öldrun. Hámarksfjárhæð hvers styrks er 15 milljónir króna, auk allt að 5 milljóna króna vegna samreksturs og aðstöðu, þannig að heildarstyrkur getur numið allt að 20 milljónum króna.
Hverjir geta sótt um?
Verkefnisstjórar (Project Leader, PL) og aðalumsækjendur (Principal Investigator, PI) um styrki Heilbrigðisvísindasjóðs þurfa að hafa lokið rannsóknartengdu námi við alþjóðlega viðurkennda háskóla.
Skilyrði er að verkefnisstjóri gegni stöðu eða hafi aðstöðu við íslenskan háskóla eða stofnun á fyrirhuguðu styrktímabili. Einungis er hægt að vera verkefnisstjóri eða aðalumsækjandi á einni umsókn. Meðlimir fagráðs og stjórnar Heilbrigðisvísindasjóðs geta ekki verið þátttakendur í umsókn til sjóðsins.
Hvernig er sótt um?
Eingöngu er tekið við umsóknum og fylgiskjölum í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís - Mínar síður Rannís. Ekki er hægt að skila inn umsókn nema öllum skyldureitum hafi verið svarað og nauðsynlegum fylgiskjölum hefur verið hlaðið upp.
Umsókn og fylgiskjöl skulu vera á ensku.
Handbók sjóðsins gildir fyrir árið 2026.
Svör við spurningum
Fyrirspurnum má beina til sérfræðinga Heilbrigðisvísindasjóðs hjá Rannís á netfangið hvsjodur@rannis.is
Nánari upplýsingar er að finna í reglum sjóðsins í Handbók 2026.
Þjónustuaðili