Heilbrigðisvísindasjóður heilbrigðisráðuneytisins
Stjórn
Ráðherra skipar fimm fulltrúa í stjórn Heilbrigðisvísindasjóðs til þriggja ára í senn. Formaður stjórnar er skipaður af ráðherra án tilnefningar og honum til viðbótar skipar ráðherra fjóra fulltrúa með sérfræðiþekkingu á grunnvísindum, lýðheilsu og klínískum rannsóknum, þrjá fulltrúa samkvæmt tilnefningum frá háskólasamfélaginu og einn fulltrúa án tilnefningar.
Ákvarðanir stjórnar um veitingu styrkja úr Heilbrigðisvísindasjóði eru endanlegar á stjórnsýslustigi. Samkvæmt 4. grein laga nr. 3 frá 2003 sæta ákvarðanir stjórnar Heilbrigðisvísindasjóðs um styrkveitingu eða höfnun ekki stjórnsýslukæru.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands