Fara beint í efnið

Greiðsluþátttaka vegna kaupa á gleraugum eða linsum fyrir börn

0 til 6 ára

Börn 0 til 6 ára eiga rétt á endurgreiðslu tvisvar á ári.

Upphæðir

Upphæð endurgreiðslu fer eftir tegund og styrk glerja. Endurgreiðsla er aldrei hærri en verð á keyptum glerjum.

Styrkur

með eða án sjónskekkju minni en 2

  • 0,25 til 4 er 10.000 krónur á hvert gler

  • 4,25 til 6 er 15.000 krónur á hvert gler

  • 6 eða meira er 20.000 krónur á hvert gler

Tvískipt eða margskipt gler

með eða án sjónskekkju minni en 4

  • 0 til 4 er 26.000 krónur á hvert gler

  • 4,25 eða meira er 50.000 krónur á hvert gler

Sterk sjónskekkjugler

  • Cylinder -2,25 eða meira er til viðbótar 1500 krónur á hvert gler

Prismagler

  • 4000 krónur til viðbótar hvert gler

Harðar linsur

  • 14000 krónur á hvert stykki

Hægt er að velja um linsur eða gler. Ef linsur verða fyrir valinu má safna saman kvittunum yfir tímabilið þar til hámarki er náð.

Þjónustuaðili

Sjón­stöðin

Ábyrgðaraðili

Sjón­stöðin